fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Jakob framkvæmdastjóri SUS á 15 milljóna glæsikerru en starfsfólk fékk ekki laun – Settu veitingastað á hausinn á mettíma

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Föstudaginn 13. júlí 2018 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undir lok apríl síðastliðinn opnaði nýtt veitingahús í splunkunýju húsnæði við Mýrargötu 31 í Reykjavík. Veitingahúsið fékk heitið LOF og sérhæfði staðurinn sig í spænskri matargerð. Tæplega þremur mánuðum síðar hefur staðnum verið lokað og samkvæmt heimildum DV blasir gjaldþrot fyrirtækisins við. Þá sitja margir starfsmenn fyrirtækisins og birgjar eftir með sárt ennið. Hafa starfsmenn haft samband við stéttarfélag sitt, Eflingu, til þess að fá aðstoð.

Veitingahúsið sem fór á hausinn á mettíma. Mynd/Hanna

Borguðu hvorki birgjum né starfsfólki laun

Í kringum rekstur veitingastaðarins var fyrirtækið Lof Restaurant ehf. stofnað. Eigendur þess voru Enzo Rinaldi, Birgir Örn Arnarsson og tengdasonur hans, Jakob Helgi Bjarnason. Samkvæmt upplýsingum frá fyrrum starfsmönnum félagsins kom hugmyndin að opnun staðarins frá Rinaldi og félaga hans Garcia og leituðu þeir til Birgis Arnar og Jakobs Helga til þess að leigja húsnæðið við Mýrargötu sem var í þeirra eigu og var nýreist. Tengdafeðgarnir höfðu þá mikinn áhuga á að taka þátt í verkefninu og varð það niðurstaðan.

Samkvæmt heimildum DV var daglegur rekstur í höndum Rinaldi og Garcia en Jakob Helgi sá um fjármál félagsins. Matreiðslumennirnir tveir hafa verið farsælir í rekstri annarra veitingahúsa og þess vegna nutu þeir velvildar hjá hinum ýmsu birgjum fyrirtækisins varðandi hráefni og önnur tæki og tól. Það hafi síðan runnið á þá tvær grímur þegar birgjar fóru að hafa samband við þá persónulega vegna vangoldinna reikninga félagsins og skömmu síðar blossaði upp reiði starfsmanna sem höfðu ekki fengið laun sín greidd. Það var ekki síst vegna þeirrar staðreyndar að Jakob Helgi brunaði um á glænýrri Porsche-bifreið, sem kostaði um 14 milljónir króna á sama tíma og starfsfólk fékk ekki greidd laun.

Fékk ekki aðgang að bókhaldi og reikningi félagsins

Rinaldi krafðist þess þá að fá aðgang að reikningum fyrirtækisins en við því varð ekki orðið. Í byrjun júlímánaðar lokuðu Birgir og Jakob Helgi síðan veitingastaðnum og stefnir hann nú í þrot. Starfsmenn félagsins hafa leitað til stéttarfélagsins Eflingar vegna ógreiddra launa og launatengdra gjalda.

DV hafði samband við Rinaldi og Garcia við vinnslu fréttarinnar. Þeir vildu ekki tjá sig um málið en staðfestu þó að veitingastaðnum hefði verið lokað og að eigendur staðarins hefðu deilt um fjárreiður hans. Þá sögðust þeir harma það að starfsfólk fyrirtækisins sæti eftir með sárt ennið og kváðust ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að réttindi þeirra yrðu ekki fyrir borð borin.

„Ég hef ekkert komið nálægt rekstrinum og þekki það ekki neitt. Ég er fyrst og fremst húseigandi,“ sagði Birgir Örn Arnarsson þegar DV spurði hann hvort staðurinn væri kominn í þrot. Þá sagði hann að tengdasonurnn, Jakob Helgi, væri vissulega í stjórn veitingastaðarins en kæmi ekkert nálægt daglegum rekstri að því er hann best vissi. Aðspurður hver hefði séð um bókhald staðarins vísaði hann á Enzo og Jakob Helga.

Porsche Panamera Turbo S E-hybrid. Það hleypti illu blóði í starfsmenn að sjá einn eiganda fyrirtækisins bruna um á þessum lúxusbíl á sama tíma og laun fengust ekki greidd.

Hunsaði beiðni um viðtal

Jakob Helgi hafði sömu sögu að segja og tengdafaðir hans. Eftir ítrekaðar tilraunir til þess að ná í hann svaraði hann loks blaðamanni DV í gegnum tölvupóst með þessum orðum: „Ég á húsnæðið undir veitingastaðinn og kem þannig inn sem minnihlutaeigandi í LOF. Ég kem ekki að rekstrinum.“ Hann brást ekki við óskum blaðamanns um símaviðtal og svaraði ekki frekari spurningum um málið, eins og hvernig það gengi upp að hann væri einn prókúruhafi fyrirtækisins en kæmi ekki nálægt rekstri veitingastaðarins.

Jakob Helgi er einn eigandi byggingafyrirtækisins Modulus ehf. þar sem hann starfar einnig samhliða fjárfestingum sínum. Samhliða þessum störfum var hann ráðinn framkvæmdastjóri SUS – Sambands ungra sjálfstæðismanna í september 2017. Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins sóttist Jakob Helgi eftir sæti í Atvinnuveganefnd flokksins og þar sagði í stuttum kynningartexta um hann: „Ég hef þrátt fyrir ungan aldur reynslu af því að vera atvinnurekandi. Ég hef rekið eigið fyrirtæki í 3 ár og þekki hvað þarf til að koma nýju fyrirtæki á laggirnar. Ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn sé leiðandi í því að minnka bil á milli launa og heildar launakostnaðar fyrirtækja.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala