fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Ellefu mánaða ungabarn lést í slysinu við Núpsvötn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. desember 2018 11:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnið sem lést í slysinu við Núpsvötn var fætt í janúar 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Eins og áður hefur komið fram voru tveir bræður á ferðalagi um Íslands ásamt fjölskyldum sínum. Eiginkonur bræðranna létust báðir í slysinu, auk ungabarnsins.  Önnur konan var fædd árið 1979 en hin 1981. Bræðurnir slösuðust alvarlega auk tveggja barna þeirra sem erun sjö og níu ára gömul. Fólkið er allt breskir ríkisborgar en á rætur sínar að rekja til Indlands.

Í tilkynningu lögreglu segir að tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Fyrir liggur að bifreiðinni var ekið fram hjá myndavélum við Hvolsvöll snemma sama morgun. Bifreiðinni var ekið til austurs, eftir Suðurlandsvegi og virðist hafa snúist á brúnni með þeim afleiðingum að hún fór uppá vegrið brúarinnar, hægra megin, eftir því nokkra vegalengd og síðan útaf henni. Þar fellur bíllinn niður á áraurana fyrir neðan brúna.

Hægt reyndist að aka, eftir vegslóða austar á sandinum, að bifreiðinni og athafna sig með sjúkrabíla og tækjabúnað björgunaraðila við brúna. Björgunaraðgerðir voru umfangsmiklar og margir sem að þeim komu. Þannig mættu viðbragðsaðilar alla leið frá Höfn að austan og frá Selfossi að vestan auk viðbragðsaðila úr Reykjavík sem m.a voru fluttir með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Veðurfarslegar aðstæður til björgunar á vettvangi voru þokkalegar en hinsvegar þungbúið og mikil úrkoma vestar. Landhelgisgæslan mun hafa notað þriðju vélina til að leiðsegja þyrluflugmönnum á vettvang vegna þess hversu skyggni til flugs var slæmt sem og til að tryggja fjarskipti við vettvang. Viðbragðsaðilar á leið á vettvang, bæði austan og vestan að tilkynntu um hálkubletti á leiðinni þangað.

Lögregla biður þá sem mögulega hafa upplýsingar um slysið að hafa samband við okkur í síma 444 2010, á facebook eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is

Lögregla þakkar öllum þeim sem að aðgerðunum komu fyrir þeirra vinnu, stóra sem smáa.  Samvinna viðbragðsaðila stendur upp úr í þessu erfiða máli og ljóst að slagkrafturinn er mikill þegar allir leggjast á eitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum