fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Katrín vill mynda þjóðstjórn

Telur að kjósa ætti að nýju eftir ákveðinn tíma – Svartsýn á fimm flokka stjórn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. desember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur affarasælast að mynduð verði þjóðstjórn allra flokka sem sæti eiga á Alþingi. Hún telur jafnframt að eðlilegast væri að kosið yrði á nýjan leik eftir einhvern ákveðinn tíma. Upp úr viðræðum Katrínar og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um hugsanlega stjórnarmyndun slitnaði í gær, fimmtudag.

Katrín og Bjarni hófu viðræður 29. nóvember. Samkvæmt heimildum DV þótti Vinstri grænum Sjálfstæðisflokkurinn lítt tilbúinn til að gera málamiðlanir og fáar handfastar tillögur hefðu komið fram um hvernig flokkarnir gætu náð saman. Sjálfstæðismönnum mun aftur á móti hafa komið á óvart hversu fast Vinstri græn stóðu á sínum áherslum. Of langt hafi einfaldlega verið milli flokkanna tveggja málefnalega til að þeir gætu náð saman.

Eðlilegt að ræða við Bjarna

Katrín segir að eðlilegt hafi verið að eiga viðræður við Bjarna í ljósi stöðunnar sem upp var komin. „Þetta var gott samtal og mér fannst dýrmætt að eiga það, ég held að það gæti orðið gott veganesti fyrir samstarfið í þinginu. Ég held að þessir flokkar skilji hvor annan betur nú en áður. Það var hins vegar langt á milli flokkanna. Ég myndi ekki segja að það hafi steytt á neinu sérstöku, enda voru þetta ekki orðnar formlegar viðræður.“

Spurð hvort það hafi haft einhver áhrif á viðræðurnar að fregnir höfðu borist af takmörkuðum áhuga hugsanlegra samstarfsflokka, Samfylkingar og Bjartrar framtíðar, á aðkomu að stjórnarsamstarfinu svaraði Katrín því neitandi. „Það spilaði ekki inn í niðurstöðuna.“

Ekki bjartsýn á fimm flokka stjórn

Sem kunnugt er áttu fulltrúar Pírata, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Samfylkingar óformlegar viðræður í fyrradag þar sem til umræðu var að hefja hugsanlega formlegar stjórnarmyndunarviðræður á nýjan leik. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, setti sig í gær í samband við Katrínu og ámálgaði við hana hugsanlega aðkomu Vinstri grænna að viðræðum um fimm flokka ríkisstjórn á nýjan leik. Katrín segir engar ákvarðanir muni verða teknar í þeim efnum fyrr en þingflokkur Vinstri grænna hafi fundað og það muni í fyrsta lagi gerast í dag, föstudag. „Það liggur fyrir að það slitnaði upp úr viðræðum þessara fimm flokka vegna þess að Viðreisn hafði ekki sannfæringu fyrir því að þetta samstarf gæti gengið upp. Ég veit ekki hvað ætti að hafa breyst í þeim efnum.“

Katrín segir ekki tímabært að ræða hvort Vinstri græn muni koma að viðræðunum. „Mér finnst kannski bara ástæða til þess að flokkarnir velti fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að mynda hérna þjóðstjórn og kjósa að nýju eftir einhvern ákveðinn tíma. Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki bara einfaldast í ljósi stöðunnar.“

Takmarkaður áhugi Vinstri grænna

Eftir því sem heimildir DV herma er vilji til þess af hálfu flokkanna fjögurra sem funduðu í fyrradag að reyna að ná saman um myndun ríkisstjórnar. Sá vilji er hins vegar takmarkaður í röðum Vinstri grænna enda telja þingmenn flokksins að ekki verði lengra komist í viðræðum nema um verulega stefnubreytingu verði að ræða af hálfu Viðreisnar. Vinstri græn hafi komið verulega til móts við Viðreisn í fyrri viðræðum flokkanna en hafi fátt fengið til baka.

Komi Vinstri græn ekki að borðinu í viðræðum við flokkana fjóra er staðan orðin mjög þröng. Þingmenn Viðreisnar eru þannig mjög óánægðir með framgöngu Bjarna Benediktssonar og Sjálfstæðisflokksins á dögunum, þegar að Bjarni hélt ekki áfram viðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð en kaus að taka upp samtal við Katrínu. Flokksmenn Viðreisnar munu því ekki spenntir fyrir að taka að nýju upp þær viðræður.

Framsókn enn út úr myndinni

Framsóknarflokkurinn hefur staðið utan viðræðna fram að þessu og fátt bendir til þess að breyting verði á því. Þannig staðfesti Smári McCarthy í samtali við DV að Píratar útilokuðu enn sem fyrr samstarf við flokkinn, og raunar einnig samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Því væri sú lausn ekki í boði að fá Framsóknarflokkinn inn í stað Vinstri grænna í fimm flokka stjórn. Viðreisn hefur útilokað að starfa með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki í ríkisstjórn fram til þessa og fátt sem bendir til að breyting verði þar á. Því gæti niðurstaðan allt eins orðið sú sem Katrín varpar nú fram, að mynduð verði þjóðstjórn og boðað til kosninga að nýju, mun fyrr en ella.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga