fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Sjáðu myndbandið: Leikmenn Real drulluðu yfir dómarann eftir leik – Rautt spjald á loft

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 21:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Real Madrid drulluðu yfir dómarann eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni í kvöld. Arda Guler fékk rautt spjald.

Leikmenn Real voru brjálaðir yfir rauðu spjaldi sem Eduardo Camavinga fékk seint í leiknum þegar allt stefndi í framlengingu.

Bayern Munich tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir dramatískan 4-3 sigur gegn Real Madrid, þar sem samanlagt 6-4 sigur dugði Þjóðverjunum.

Leikurinn byrjaði með látum þegar Arda Güler skoraði strax á fyrstu mínútu og bætti síðar við öðru marki. Harry Kane og Aleksandar Pavlović skoruðu fyrir Bayern en Kylian Mbappé kom Real aftur yfir fyrir hlé.

Í seinni hálfleik var spennan gríðarleg og þegar Eduardo Camavinga fékk rautt spjald undir lokin nýtti Bayern sér liðsmuninn. Luis Díaz skoraði á 89. mínútu og sendi heimamenn áfram. Rauða spjaldið var umdeilt en Camavinga fékk tvö gul spjöld eftir að hafa komið inn sem varamaður, það seinna fyrir að tefja leikinn.

Það var svo í uppbótartíma sem Michael Olisie skoraði fjórða og síðasta mark leiksins fyrir Bayern og skaut liðinu áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Konurnar taka við af körlunum um helgina

Konurnar taka við af körlunum um helgina
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid