fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 11:30

David og Victoria Beckham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Victoria Beckham hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinskátt um erfið samskipti fjölskyldunnar við elsta son sinn, Brooklyn Beckham.

Samskipti Brooklyn við foreldra sína, Victoria og David Beckham, hafa verið stirð um nokkurt skeið. Í janúar vakti Brooklyn mikla athygli þegar hann gagnrýndi foreldra sína opinberlega og sakaði þau meðal annars um að hafa reynt að hafa áhrif á samband hans við eiginkonu sína, Nicola Peltz.

Brooklyn Beckham, Nicola Peltz, Victoria Beckham og David Beckham.

Síðan þá hefur hann haldið sig fjarri fjölskyldunni opinberlega og hefur jafnvel lokað á foreldra sína og systkini á samfélagsmiðlum.

Victoria hefur hingað til forðast að ræða málið beint en í viðtali við The Wall Street Journal opnaði hún sig um stöðuna. Hún lagði áherslu á að fjölskyldan elski börnin sín og hafi ávallt reynt að vera bestu mögulegu foreldrar.

„Við elskum börnin okkar svo mikið og höfum alltaf reynt að vernda þau,“ sagði hún og bætti við að það væri það eina sem hún vildi segja opinberlega um málið.

Þrátt fyrir ágreininginn óskaði hún Brooklyn til hamingju með afmælið á dögunum, en hann svaraði ekki. Málið hefur vakið mikla athygli, enda um eina þekktustu fjölskyldu tengda knattspyrnu að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar