fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Mannránið sem hélt Spáni í heljargreipum í 900 daga

Pressan
Mánudaginn 13. apríl 2026 22:00

Anabel Segura með foreldrum sínum, José Segura Nájera og Sigrid Foles.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 12. apríl 1993 fór hin 22 ára gamla Anabel Segura út að skokka um La Moraleja í Madríd, líkt og hún gerði jafnan. Anabel var háskólanemi á þessum tíma og La Moraleja-hverfið átti að vera tiltölulega öruggt, enda eitt ríkasta og dýrasta hverfi borgarinnar. En Anabel kom aldrei aftur heim. Það sem fylgdi í kjölfarið varð eitt átakanlegasta og langvinnasta mannránsmál í sögu Spánar – mál sem hélt fjölskyldu hennar og spænsku þjóðinni í óvissu í 900 daga.

Það sem fjölskylda hennar, lögregla og spænskt samfélag vissi ekki var að örlög Anebel höfðu ráðist sama kvöld og hún hvarf: Hún var myrt aðeins sex klukkustundum eftir að tveir menn rændu henni. Samt áttu foreldrar hennar, rannsóknarlögregla og heil þjóð eftir að lifa í von og óvissu í meira en tvö og hálft ár.

Málið varð eitt hið þekktasta í spænskri sakamálasögu og vakti aftur athygli síðla árs 2024 þegar Netflix gaf út heimildarþáttaröðina 900 Days Without Anabel.

Segura var valin af handahófi. Ræningjarnir, Emilio Muñoz Guadix og Cándido Ortiz Aon, höfðu ákveðið að ræna einhverjum úr efnameira hverfi og krefjast lausnargjalds.

Þeir stöðvuðu hana á hlaupaleiðinni, neyddu hana inn í hvítan sendibíl og óku af stað. Vitni heyrðu hjálparóp og sáu átökin, en skráningarnúmer bílsins náðist ekki. Á vettvangi fannst meðal annars hluti af fatnaði hennar Walkman-vasadiskó.

Hræddir um að hún gæti borið kennsl á þá

Í örvæntingu barðist Segura fyrir lífi sínu og reyndi hún meðal annars að stökkva út úr sendibílnum og flýja. Mennirnir náðu henni aftur. Í skelfingu yfir því að hún gæti borið kennsl á þá fóru þeir með hana í yfirgefna verksmiðju í Toledo, þar sem þeir kyrktu hana til bana sama kvöld.

Þrátt fyrir að Segura væri látin héldu mennirnir áfram áætlun sinni.

Næstu 900 dagana hringdu þeir endurtekið í foreldra hennar og kröfðust 150 milljóna peseta í lausnargjald. Það samsvarar tæplega 130 milljónum íslenskra króna á gengi dagsins í dag og enn hærri upphæð miðað við kaupmátt þess tíma.

Þeir létu eins og hún væri enn á lífi, skipulögðu afhendingarstaði sem þeir mættu aldrei á og sendu jafnvel upptöku þar sem kona þóttist vera Segura og bað grátandi um að fá að koma heim. Síðar kom í ljós að það var eiginkona Muñoz sem lék hlutverkið.

Fjölskyldan gerði allt sem hún gat

Fjölskylda hennar gekk mjög langt í von um að bjarga henni: faðir hennar endurfjármagnaði húsið, fékk lán hjá vinum og kunningjum og bauð háar fjárhæðir fyrir upplýsingar um hana.

Þessi langa blekking, þar sem vonin lifði miklu lengur en fórnarlambið, varð það sem greypti málið í minni spænsku þjóðarinnar.

Vendipunkturinn kom þegar lögregla birti upptökur af röddum ræningjanna í fjölmiðlum.

Áhorfandi sem heyrði upptökuna þekkti rödd annars mannsins og tengdi hana við pípulagningamann úr sínu bæjarfélagi. Sú ábending leiddi til handtöku þeirra í september 1995.

Við yfirheyrslur játuðu þeir morðið og bentu á staðinn þar sem lík Segura var grafið. Lík hennar fannst tveimur dögum síðar í yfirgefnu vöruhúsi í Numancia de la Sagra.

Mennirnir voru að lokum dæmdir í 43 ára fangelsi. Ortiz lést í fangelsi árið 2009, en Muñoz var látinn laus árið 2013 eftir breytingar á spænskri refsiframkvæmd.

Þótt dómarnir hafi fallið fyrir löngu lifir málið enn sterkt í minni Spánverja. Í Madríd er hennar minnst með menningarmiðstöð sem ber nafn hennar og minnisvarða sem stendur við bygginguna, þögulli áminningu um mál sem þjóðin hefur aldrei gleymt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik