fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Þess vegna er mikilvægt að halda heimilinu hreinu og vel viðhöldnu

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 17:30

Hér þarf nú að taka til hendinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hreint og velviðhaldið heimili snýst um miklu meira en fagurfræði. Umhverfi okkar endurspeglar mjög andlegt ástand okkar og getur haft bein áhrif á andlega og líkamlega vellíðan okkar.

Draslaralegt og skítugt heimili er oft ekki bara merki um að fólk eigi annríkt, það getur einnig verið merki um innri óróleika og orku. Bovary skýrir frá þessu.

Í samtali við miðilinn sögðu sálfræðingar að þegar hugsanir okkar snúast um áhyggjur og skort á einhverju, þá hafi það áhrif á umhverfi okkar.

Sóðalegt og draslaralegt heimili getur aukið tilfinninguna um stress og orkuleysi sem minnkar áhugann og lystina á að gera eitthvað til að takast á við vandamálið. Þannig myndast neikvæð hringrás þar sem óþrifnaður og draslaraskapur annars vegar og andlegt álag hins vegar magna hvert annað.

Hjá mörgum eru þessi vandamál tilkomin vegna langs vinnudags og of lítils hvíldartíma. Þegar skilafrestur, fundir og fjölskyldulíf fylla dagskrá dagsins, verða þrif og tiltekt oft afgangsverkefni. Þetta á sérstaklega við um þá sem reyna að halda ákveðnu jafnvægi á milli vinnunnar og einkalífsins, þá skortir oft orkuna til að takast á við heimilisstörfin.

Það getur síðan haft slæm áhrif á líkamlega heilsu að þrífa heimilið ekki. Ryk og raki geta gert ofnæmi verri og valdið öndunarfæra erfiðleikum, sérstaklega hjá börnum og eldra fólki.

Matarleifar og rusl geta laðað meindýr að sér og skortur á útloftun eykur hættuna á að myglusveppur hreiðri um sig. Rannsóknir hafa einnig sýnt að draslaralegt og óhreint umhverfi getur haft neikvæð áhrif á einbeitinguna og svefngæðin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið