Maður í Wales hefur verið dæmdur til fangelsisvistar eftir að hafa geymt lík látinnar móður sinnar í frystikistu í þrjú ár og hafa hirt ellilífeyris - og bótagreiðslur, frá hinu opinbera, sem ætlaðar voru henni.´Maðurinn og lögmaður hans útskýra athæfið meðal annars með því að hann hafi, vegna mikillar sorgar, ekki verið tilbúinn til að sleppa takinu og sætta sig við að móðir hans væri farin yfir móðuna miklu.
Maðurinn er 60 ára gamall og heitir Christopher Phillips. Móðir hans var 89 ára þegar hún lést en hún hét Silvia Phillips. Christopher geymdi lík hennar í frystikistu á heimili þeirra í bænum Porthcawl í suðurhluta Wales en bærinn, hvað íbúafjölda varðar, er á stærð við Akureyri.
Alls var lík Silviu í frystinum í rétt tæplega þrjú ár og á meðan hirti sonur hennar ellilífeyri og ýmsar bætur, frá breska ríkinu, sem ætlaðar voru henni, samtals um 78.000 pund ( um 13 milljónir íslenskra króna). Fyrir þetta athæfi hefur Christopher verið dæmdur til tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsisvistar.
Fram kemur í umfjöllun breskra fjölmiðla, m.a. Daily Mail, að Christopher hafi sagt að hann hafi viljað eyða meiri tíma með móður sinni. Lögmaður hans segir hann hafa verið í afar mikilli sorg og hafi á þessum þremur árum þó nokkrum sinnum tekið líkið upp úr frystinum og komið því fyrir í stofunni, á heimilinu, þar sem hann hafi haldið í höndina á móður sinni og sagt henni frá því hvað væri efst á baugi í sjónvarpsdagskránni, meðal annars af gangi mála í sápuóperunni langlífu Coronation Street.
Játaði
Fyrir þetta var Christopher ákærður fyir fjársvik og að hindra að móður hans yrði veitt sómasamlegt útför. Hann lýsti sig sekan af ákærunni.
Þegar dómur var kveðinn upp sagði dómari málsins að Christopher hefði blekkt heilbrigðisstarfsfólk sem hefði spurt eftir móður hans og logið því að hún hefði ekki áhuga á þjónustu þeirra.
Christopher var áður í fullri vinnu en sagði upp til að geta helgað sig alfarið umönnun móður sinnar: Það gerði hann skömmu áður en hún lést, í mars árið 2023 en hann hafði verið umönnunaraðili móður sinnar allt frá árinu 2008.
Lögreglan fann loks líkið af Silviu í febrúar á þessu ári eftir að heimilislæknir hennar hafði samband og lýsti yfir áhyggjum af velferð hennar. Þegar lögreglumenn komu að heimilinu spurðu þeir Christopher hvar móðir hans væri en hann laug því að hún væri að heimsækja ættingja í London. Þegar lögreglumennirnir spurðu Christopher nánar út í þessa ættingja og hvar í London þeir byggju gat hann engu svarað um það. Þegar hann var handtekinn og færður til yfirheyrslu í kjölfar líkfundarins neitaði hann að svara spurningum.
Náin
Cristopher var raunar ekki líffræðilegur sonur Silviu en hún ættleiddi hann þegar hann var tveggja ára gamall. Lögmaður Cristopher segir hann alla tíð hafa verið afar náinn móður sinni.
Lögmaðurinn segir að hegðun Christopher sýni að andlegt ástand hans hafi verið bágborið þegar móðir hans dó og hann hafi alls ekki viljað sleppa af henni takinu og sætta sig orðinn hlut.
Þótt málinu gegn Christopher sé lokið á réttarrannsókn á dauða móður hans eftir að fara fram en ekki kemur fram að hann sé á nokkurn hátt grunaður um að hafa valdið andláti hennar.