Pressan

Vill ekki mæta foreldrum litla drengsins sem hann myrti þegar hann var tíu ára

Mynd
James Bulger og Jon Venables.

Jon Venables, maðurinn sem myrti tveggja ára dreng þegar hann var tíu ára gamall, hefur farið fram á að foreldrum drengsins verði meinaður að mæta þegar tekið verður fyrir hvort hann fái reynslulausn.

Venables rændi og myrti hinn tveggja ára James Bulger í verslunarmiðstöð á Englandi árið 1993 ásamt vini sínum Robert Thompson. Málið vakti mikinn óhug þar sem piltarnir tveir voru 10 ára þegar þeir frömdu þennan hryllilega glæp, vakti það mikla reiði í landinu þegar þeim var sleppt úr haldi þegar þeir urðu 18 ára gamlir árið 2001. Hefur málið vakið upp ýmsar spurningar, þar á meðal hvort það hafi verið rétt á sínum tíma að nafn og myndbirta gerendurna, glæpi ungmenna og refsingar fyrir glæpi sem eru framdir á barnsaldri. 

Nafnlausir út ævina

Venables og Thompson var veitt sérstök heimild til að verða nafnlausir allt sitt líf og er fjölmiðlum meinað að birta af þeim myndir eða segja hvar þeir búa. Hefur lögreglan í nokkur skipti haft afskipti af fólki sem hefur birt myndir af mönnum og segja að um sé að ræða Thompson eða Venables.

Venables hefur margsinnis komið við sögu lögreglu eftir að honum var sleppt úr haldi, árið 2010 var hann handtekinn fyrir vörslu á barnaníðsefni og aftur árið 2017. Hann játaði árið 2018 og er enn í fangelsi. Hann hefur reynt nokkrum sinnum að fá reynslulausn og hyggst gera það aftur núna á næstunni, líklegt er að málið verði tekið fyrir í september.

Foreldrar Bulger hafa beitt sér fyrir því að Venables verði sviptur nafnleysinu. Árið 2019 hafnaði dómari beiðni föður Bulger á grundvelli þess að líklegt þyki að Venables verði eltur með mögulega banvænum afleiðingum. Í tengslum við umfjöllun um að mögulegt væri að flytja Venables til Nýja Sjálands sagði Jacinda Arden, þáverandi forsætisráðherra, að hann „ætti ekki að reyna“ að sækja um. 

Venables hefur í lengstu lög reynt að forðast fjölskyldu Bulger og árið 2023 neitaði að hann að vera viðstaddur þar sem fjölskyldumeðlimir Bulger myndu „valda skaða á geðheilsu hans“. 

Vill alls ekki mæta fjölskyldu drengsins

Foreldrar Bulger, Denise og Ralph, hafa verið að undirbúa sig lengi fyrir að mæta Venables sem vill ekki hafa þau viðstödd. „Þetta hefur valdið þeim meiri angist ofan á allt annað sem þau hafa þurft að þola,“ sagði heimildarmaður The Sun um nýjustu vendingarnar. „Enn og aftur þá er fjölskyldan að velta fyrir sér hver sé í raun fórnarlambið – þau eða skrímslið sem pyntaði og myrti James. Það væri fáránlegt að gefa fjölskyldunni von með því að leyfa þeim að koma en taka það af þeim vegna þess að Venables er of hræddur til að sjá þau.“

Breska dagblaðið Mirror óskaði eftir upplýsingum frá nefndinni sem sér um reynslulausn fanga. „Ákvarðanir nefndarinnar snúast einungis að því hvort fangi sé hættulegur samfélaginu ef honum verði sleppt og hvort áhættan sé þess virði,“ segir í svari nefndarinnar. Slíkir fundir geta varið heilan dag þar sem rætt er við sálfræðinga, geðlækna og fangaverði auk þess sem fulltrúar fórnarlamba fá að tjá sig. „Nefndarmenn munu fara yfir mikið magn sönnunargagna, þar á meðal upprunalega glæpsins, og skoða hvort hegðun hafi breyst ásamt því að skoða þann skaða sem fanginn hefur valdið þolendum sínum.“