Sextán börnum úr sömu fjölskyldunni var bjargað úr niðurníddu húsi úti á landi í Ohio í Bandaríkjunum í vikunni. Lögreglan segir að börnin hafi öll verið læst inni í einu herbergi og hafi búið þar við skelfilegar aðstæður undanfarin fjögur ár.
Fernt hefur verið handtekið vegna málsins en það eru foreldrar barnanna og afi þeirra og amma.
Málið kom íbúum Ohio í opna skjöldu og er þeim illa brugðið. Ryan Cain, lögreglustjóri í Vinton County, sagði á fréttamannafundi að flest húsdýr í ríkinu búi við betri aðstæður en börnin bjuggu við. The Guardian skýrir frá þessu.
Hann lýsti húsinu sem bakteríubæli og þar hafi verið mikið af mannasaur út um allt.
„Þetta var einfaldlega viðbjóðsleg sjón,“ sagði hann á fréttamannafundinum.
Saksóknarar segja að foreldrar barnanna og afi þeirra og amma sé grunuð um að hafa vanrækt börnin alvarlega.
Andy Wilson, dómsmálaráðherra Ohio, sagði að lögreglan hafi fundið börnin þegar hún gerði leit í húsinu í tengslum við rannsókn á allt öðru máli. Hafi lögreglan ekki vitað hvað beið hennar í húsinu.
Wilson sagði aðstæðurnar í húsinu vera þær verstu sem hann hafi nokkru sinni séð. „Svona lagað eru við ekki vön að sjá hér í Bandaríkjunum,“ sagði hann og bætti við að sólarhring eftir að börnin fundust hafi hann ekki enn verið búinn að „ná óþefnum af sér“.
Cain sagði að börnin hafi að mestu dvalið í 13 fermetra herbergi. Hann vildi ekki svara því hvernig þeim var haldið í húsinu en lagði áherslu á að engin búr hefðu fundist.
Sjö börn voru flutt á sjúkrahús í Columbus og flogið var með tvö á sérhæfðar móttökur fyrir fólk sem hefur orðið fyrir alvarlegum áföllum.
„Börnin líktust næstum villtum dýrum. Þetta var skelfilegt,“ sagði Cain.
Hin handteknu voru úrskurðuð í gæsluvarðhald á miðvikudaginn. Þau neita öll sök.
Fjölskyldan bjó á mörgum stöðum í suðurhluta Ohio síðustu tvo áratugina og forðaðist að leita til heilbrigðisyfirvalda eða annarra opinberra aðila. Börnin gengu ekki í skóla.
Yfirvöld í Ohio hafi farið fram á að fá forræði yfir öllum börnunum sextán til bráðabirgða.