
Yngsta dóttir Daisy Hall, Winnie, tuggði á lyngrós (e. rhododendron) í kerrunni sinni þegar fjölskyldan heimsótti Attingham Park í Shropshire.
Fjögurra barna móðirin varar aðra foreldra við hættunum sem fylgja rósinni, sem er algeng garðplanta, eftir að eins árs dóttir hennar varð fyrir eitrun.
„Ég setti hana aftur í kerruna og þegar við lögðum aftur af stað hlýtur hún að hafa gripið rós og byrjað að tyggja á henni.“
Daisy leitaði á netinu og komst að því að blómið er mjög eitrað fyrir menn. Hún hraðaði sér því með Winnie á sjúkrahús. Læknar gáfu Winnie virkt kol blandað vatni, sem Daisy var sagt að hjálpi til við að koma í veg fyrir að eitrið frásogist inn í líkamann.
Fylgst var með ástandi Winnie með hjartalínuriti í sex klukkustundir áður en hún var útskrifuð. Því næst var fylgst með henni heima í sólarhring til viðbótar. Rhododendronplöntur innihalda eiturefni sem kallast gráanótoxín, sem geta verið skaðleg bæði mönnum og dýrum ef þau eru étin, og eru einkennin ógleði, sundl, svimi, þokusýn og uppköst.

Sem betur fer hafði Daisy nýlega byrjað að yrkja garðinn heima og áttaði sig á þörfinni á að bera kennsl á plöntuna. Hún ráðfærði sig einnig við móður sína, Debbie, 63 ára, sem er hjúkrunarfræðingur, áður en hún hringdi í neyðarlínuna á leiðinni á sjúkrahúsið.
„Ef ég hefði beðið eftir sjúkrabíl hefði hún líklega verið komin yfir þann tíma sem hún gat fengið kol.“
Þegar mæðgurnar komu á sjúkrahúsið fengu þær strax meðhöndlun og fengu viðarkol. „Þau þurfa að fá kolin innan klukkustundar annars frásogast eitrið í líkamanum. Það var martröð að koma viðarkolunum ofan í hanaog þess vegna vorum við þaktar svertu.“
Sem betur fer náði Winnie sér að fullu. „Hún er alveg heil á húfi.“ Síðan hún deildi reynslu sinni á netinu hefur viðvörun Daisy fengið meira en 7,1 milljón áhorf.
„Fólk á netinu hefur sagt: „Ég myndi ekki einu sinni hugsa um að athuga þetta“ og „þetta hefur fengið mig til að hugsa öðruvísi í stað þess að bara taka plötnu úr munni barnsins míns og segja því að það eigi ekki að borða hana, núna myndi ég fletta plöntunni upp“. Fólk hefur verið að deila öðrum eitruðum plöntum og allir hafa lært af því.“
