fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 20:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla í Utah í Bandaríkjunum hefur handtekið hjónin Brigham Merrell og Melinda Merrell. Þau eru grunuð um að hafa banað syni sínum í september á síðasta ári.

People segir að lögreglumenn hafi verið sendir að heimili fjölskyldunnar í Tremonton í Utah þann 21. september. Tilkynnt hafði verið um lífvana barn.

Lögreglan fann lífvana dreng og voru lífgunartilraunir samstundis hafnar. Hann var síðan fluttur á sjúkrahús en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað.

Lögreglan tilkynnti nýlega að foreldrar drengsins hafi verið handteknir eftir að rannsókn hafði afhjúpað „mynstur stöðugs ofbeldis gagnvart látna drengnum og öðru barni á heimilinu“.

Þegar Brigham hringdi í neyðarlínuna sagðist hann hafa fundið son sinn hangandi í bílskúrnum og sagði að hann hefði hengt sig sjálfur.

Hann sagði lögreglumönnum síðan að hann hefði beitt hjartahnoði á drenginn. Þegar lögreglan kom á vettvang var Brigham við hlið drengsins en var ekki að beita hjartahnoði.

Á upptökum úr eftirlitsmyndavélum í húsinu sást Brigham flytja drenginn upp á efri hæðina og gekk hann þá fram hjá dyrunum sem viðbragðsaðilar stóðu við og bönkuðu á til að komast inn.

Í skýrslu lögreglunnar segir að drengurinn hafi verið með áverka á bakinu og hafi þeir ekki getað verið tilkomnir vegna hengingar og hafi líklega komið rétt áður en drengurinn lést eða um leið og hann lést.

Rannsókn lögreglunnar leiddi einnig í ljós að hjónin höfðu beitt börnin sín ofbeldi árum saman og hafi pyntað þau. Þeim var meðal annars neitað um mat, beitt líkamlegu ofbeldi og látin vera úti í hundagerðinu í refsingarskyni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Í gær

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína