fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Pressan

Sálfræðingur hefur áhyggjur af Trump – Segir þetta í hegðun hans benda til óstöðugleika

Pressan
Þriðjudaginn 26. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sálfræðingur og fyrrverandi prófessor við Johns Hopkins University heldur því fram að hegðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum bendi til alvarlegra andlegra vandamála og mögulegrar geðröskunar.

Dr. John Gartner sagði í viðtali við hlaðvarp The Daily Beast að Trump væri „andlega veikur og vitræn geta hans fari hrakandi“ nú þegar forsetinn nálgast áttrætt en hann heldur upp á stóra daginn þann 14. júní næstkomandi. Gartnertelur að síendurteknar færslur forsetans á samfélagsmiðlum á næturnar séu skýr vísbending um andlegt ástand sé ekki gott.

Í viðtalinu, sem VT.co vísar til, sagðist Gartner hafna þeirri gagnrýni að óábyrgt væri að greina opinberar persónur án formlegs mats. Að hans mati séu einkennin svo augljós að ekki þurfi sérfræðimenntun til að sjá þau.

„Það þarf ekki einu sinni að vera læknir eða sérfræðingur til að átta sig á þessu,“ sagði hann meðal annars í viðtalinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gartner lýsir yfir áhyggjum af andlegu ástandi forsetans. Í apríl sagði hann að Trump hefði sýnt merki um framheilabilun (e. frontotemproal dementia) frá árinu 2019. Þá hefur Gartner einnig gagnrýnt það sem hann kallar „galdrakennda hugsun“ (e. magical thinking) hjá forsetanum og segir slíka hegðun oft tengjast geðrofi.

Undanfarnar vikur hefur Trump birt fjölda óvenjulegra færslna á samfélagsmiðlum, meðal annars gervigreindarmyndir af sjálfum sér í líki Jesú og myndskeið þar sem eldflaugum er skotið að jörðinni úr geimskipi.

Gartner segir ekki aðeins innihald færslnanna vekja áhyggjur heldur einnig tímann sem þær eru birtar á. Að vera vakandi alla nóttina og birta stanslaust slíkt efni sé vísbending um annað hvort oflæti eða það sem kallað er „sundowning“ þar sem óróleiki, ruglingur, pirringur og ranghugmyndir geta gert vart við sig seinni part dags eða á kvöldin.

Hann telur jafnframt að hegðunin geti verið vísbending um að forsetinn sé að undirbúa almenning fyrir harkalegar eða ófyrirsjáanlegar aðgerðir í framtíðinni.

Hvíta húsið hefur hafnað því að Trump sé veikur og segir talsmaður forsetans að Trump sé skarpur og við frábæra heilsu þrátt fyrir mikið vinnuálag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum
Pressan
Í gær

Svona lengi á fólk að sofa á hverri nóttu miðað við aldur

Svona lengi á fólk að sofa á hverri nóttu miðað við aldur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár