fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Þessu skaltu venja þig af þegar þú þværð þvott

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 20:45

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú fylgir líklega sömu rútínunni í hverri viku, safnar saman óhreinum fötum, handklæðum, sængurfatnaði, aðskilur hvítt og dökkt, setur í þvottavélina og þurrkar síðan þvottinn, brýtur hann saman og gengur frá honum.

En þótt þú elskir að þvo þvott, þá gerir þú líklega mörg mistök í ferlinu að sögn AARP.

Þú flokkar ekki –  Að skilja hvítt og dökkt að er bara upphafið. Sérfræðingar mæla með að viðkvæm efni séu aðskilin frá gerviefnum og að gallafatnaður sé þveginn sér, skiptir þá engu þótt gallabuxurnar og uppáhaldsbolurinn þinn séu eins á litinn.

Þú setur of mikið í þvottavélina – Ef þú setur mikið í vélina getur þú minnkað þann tíma sem þú notar til að sinna þvottinum en fötin verða hugsanlega ekki eins hrein. Ástæðan er að þegar við yfirfyllum vélina, getur þvotturinn ekki snúist í nægilega marga hringi og því verður þvæst hann misjafnlega og þú situr jafnvel uppi með þvottaefnisleifar á fötunum.

Þú notar of mikið þvottaefni -Þvottaefni er ætlað að góma skít og drullu og send niður í frárennsli vélarinnar. En sumar þvottavélar eru ekki nægilega öflugar til að geta haldið í við of mikið þvottaefni. Það gerir það sem það á að gera en skolast ekki úr vélinni svo það bindur sig við fötin og tekur skítinn og drulluna með sér.

Þú hunsar þvottaleiðbeiningarnar – Ef þú lest þvottaleiðbeiningarnar, á litla miðanum í fötunum, sjaldan, þá ertu ekki ein(n) um það. En það er ástæða fyrir því að þessar leiðbeiningar eru þarna og það er snjallt að lesa þær og fara eftir þeim.

Þú setur föt í þurrkarann – Það er í fínu lagi að nota þurrkarann fyrir handklæði, lök og sokka en annað á að hengja til þerris. Ástæðan er að hitinn fer illa með efnið í fatnaði og dregur úr styrk þess sem aftur eykur hættuna á að hann rifni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel