Pressan

Hlutabréf í Ferrari tóku skarpa dýfu eftir að hulunni var svipt af fyrsta rafbílnum

Mynd
Ferrari Luce er 100% rafknúinn. Mynd/Ferrari

Hlutabréf ítalska sportbílaframleiðandans Ferrari féllu töluvert í morgun eftir að fyrirtækið kynnti sinn fyrsta hreina rafbíl, Luce, sem markar tímamót í sögu félagsins.

Bíllinn var afhjúpaður á kynningarviðburði í Róm en nafnið Luce merkir „ljós“ á ítölsku. Ferrari segir nafnið eiga að kalla fram hugmyndir um skýrleika og nýja stefnu fyrir fyrirtækið.

Kynningin hefur vakið mikla athygli enda hefur Ferrari hingað til byggt ímynd sína á klassískum og kraftmiklum bensínvélum með einkennandi hljóði.

Rafbílavæðing fyrirtækisins kemur einnig á sama tíma og aðrir lúxusbílaframleiðendur, þar á meðal Porsche og Lamborghini, hafa hægt á áætlunum sínum um rafbílaframleiðslu vegna dræmrar eftirspurnar.

Féllu um sex prósent

Í frétt CNBC kemur fram að viðbrögð fjárfesta við kynningunni í morgun hafi verið heldur neikvæð, allavega til að byrja með. Hlutabréfaverð í Ferrari lækkaði um rúm sex prósent í viðskiptum í Evrópu og bandarísk skráð hlutabréf félagsins féllu einnig í formarkaðsviðskiptum.

Á síðustu tólf mánuðum hefur markaðsvirði félagsins dregist saman um meira en 30 prósent.

Forstjóri Ferrari, Benedetto Vigna, sagði kynningu Luce marka upphaf nýs kafla í sögu fyrirtækisins. Hann lagði áherslu á að Ferrari hefði nálgast verkefnið af virðingu fyrir bæði tækninni og viðskiptavinum merkisins.

„Þegar ný tækni er tekin upp þarf hönnunin einnig að þróast,“ sagði Vigna í viðtali við CNBC. Hann bætti við að fyrirtækið teldi bæði núverandi Ferrari-eigendur og nýja kaupendur líklega til að sýna bílnum áhuga.

Þúsund hestöfl og fimm sæta

Luce er jafnframt fyrsti fimm sæta bíll Ferrari frá upphafi. Bíllinn er um 1.000 hestöfl, nær 100 kílómetra hraða á um 2,5 sekúndum og hámarkshraði hans er tæplega 310 kílómetrar á klukkustund. Verðið verður um 550 þúsund evrur, jafnvirði um 88 milljóna íslenskra króna, og fyrstu afhendingar eru fyrirhugaðar síðar á þessu ári.

Greinendur segja viðbrögð markaðarins endurspegla bæði óánægju með útlit bílsins og efasemdir um að Ferrari geti viðhaldið sérstöðu sinni með rafknúnum ökutækjum.