
Konan, Michaela Rylaarsdam, 32 ára, var upphaflega ákærð fyrir morð eftir andlát Michaels Dale, 56 ára manns, í apríl árið 2023.
Los Angeles Times greinir frá því að Rylaarsdam hafi komist að samkomulagi við saksóknara í síðustu viku um að játa sekt í málinu gegn því að fá vægari dóm.
Samkvæmt gögnum málsins hafði Dale greitt Rylaarsdam rúmlega 11 þúsund dali á nokkurra vikna tímabili fyrir að framkvæma ýmsa kynferðislega gjörninga með honum. Þau kynntust í gegnum ónefnda vefsíðu þar sem fylgdarþjónusta er auglýst.
Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að Dale hafði óskað eftir sífellt hættulegri athöfnum í samskiptum sínum við Rylaarsdam. Meðal annars bað hann um að vera vafinn inn í plastfilmu „eins og múmía“ og að plastpoki yrði settur yfir höfuð hans.
Þennan örlagaríka dag árið 2023 er Dale sagður hafa legið með plastpoka yfir höfðinu sem hafði verið festur með límbandi í að minnsta kosti átta mínútur. Á sama tíma var upptaka í gangi. Rylaarsdam áttaði sig ekki á því að Dale gat ekki andað en þegar hún hringdi á neyðarlínuna var hann orðinn blár í framan.
Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang var Dale meðvitundarlaus og andaði ekki. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem honum var haldið sofandi í öndunarvél en heilastarfsemi var engin. Hann lést skömmu síðar.
Rylaarsdam hefur setið í gæsluvarðhaldi án tryggingar frá handtöku sinni í febrúar 2025. Gert er ráð fyrir að hún verði dæmd í allt að fjögurra ára fangelsi þegar endanlegur dómur verður kveðinn upp í júní næstkomandi.