
Tvö börn, þriggja og sex ára, fundust við innrás lögreglu í dópgreni í borginni Santa Cruz á Tenerife.
Canarian Weekly greinir frá og birtir myndband af lögregluaðgerðinni. Par var handtekið, grunað um sölu kókaíns úr íbúðinni, en börnunum tveimur var komið í hendur barnaverndaryfirvalda. Í aðdraganda aðgerðarinnar hafði lögreglu upplýsingar um reglulega umferð inn og út úr húsinu þar sem gestir keypti fíkniefni fyrir reiðufé. Í íbúðinni fannst nokkurt magn fíkniefna sem og áhöld til fíkniefnagerðar og notkunar.
Íbúðin var yfirgengilega sóðaleg, hlaðin sorpi og mikið af kakkalökkum og rottum var þar að finna. Annar hinna tveggja handteknu sakborninga hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en rannsókn málsins heldur áfram.