
„Fimm þjóðir – sameinuð loftvarnarsveit.“
Svona hljóðaði fréttatilkynning frá sænska hernum og er óhætt að segja að hún vitni um nýja tíma á Norðurlöndunum. Norðurlöndin þjappa sér sér saman í varnarmálum.
Nýja loftvarnarsveitin nefnist „Nordic Division“ og eins og áður sagði verður hún staðsett í Bodø. Norðurlöndin leggja öll eitthvað af mörkum til sveitarinnar að því er segir í fréttatilkynningu frá sænska hernum. Mun sveitin samhæfa loftvarnir á öllum Norðurlöndunum, bæði á friðartímum og ófriðartímum. Herir landanna munu æfa saman þannig að þeir séu algjörlega samstilltir ef virkja þarf fimmtu grein NATÓ-sáttmálans.
Enska verður sameiginlegt tungumál meðlima loftvarnarsveitarinnar og aðildarríkin fimm leggja hvert og eitt það til sem fellur best að getu þeirra. Danir eru til dæmis sagðir búa yfir langri reynslu af þátttöku í alþjóðlegum hernaðaraðgerðum en eins og allir vita getum við Íslendingar ekki lagt til neinn her en við munum hins vegar leggja til hina mikilvægu legu landsins og þekkingu á loftrýminu yfir því.