
Að minnsta kosti ellefu sérfræðingar með tengsl við svið eins og geimrannsóknir, kjarnorkutækni og varnarmál hafa horfið eða fundist látnir á undanförnum árum. Margir þeirra höfðu hæstu öryggisheimildir og aðgang að viðkvæmum upplýsingum um geimferðir, kjarnorkuvopn og þróun varnarkerfa.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að málið hafi valdið verulegum áhyggjum í Washington.
James Comer, formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar, hefur farið fram á að alríkislögreglan (FBI), varnarmálaráðuneytið, NASA og orkumálaráðuneytið hefji samræmda rannsókn á málinu. Í bréfum til stofnananna vísar hann til óstaðfestra frétta um að einstaklingar með tengsl við „bandarísk kjarnorkuleyndarmál eða eldflaugatækni“ hafi horfið eða látist við óljósar aðstæður.
„Ef þessar upplýsingar reynast réttar gætu þessi dauðsföll og mannshvörf verið alvarleg ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna,“ segir Comer. Hann bendir jafnframt á möguleg tengsl milli mála sem hafa komið upp frá árinu 2023.
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, staðfesti í síðustu viku að honum hefði verið kynnt málið og sagði að frekari upplýsingar gætu legið fyrir á næstu vikum. Hann kvaðst vonast til að um tilviljanakennd atvik væri að ræða, en útilokaði ekki að málið væri alvarlegra.
Einnig hefur þingmaðurinn Eric Burlison tekið undir kröfur um rannsókn og óskað eftir því að formleg kynning verði haldin fyrir þingmenn eigi síðar en 27. apríl næstkomandi.
Töluvert hefur verið fjallað um þessi óútskýrðu dauðsföll og mannshvörf að undanförnu. Þann 28. febrúar síðastliðinn hvarf fyrrverandi hershöfðingi í bandaríska flughernum, William Neil McCasland, sporlaust. Hann sást síðast yfirgefa heimili sitt í Nýju-Mexíkó án síma, gleraugna eða annarra nauðsynja, en var vopnaður skammbyssu.
Aðstæður í kringum hvarf hans eru sagðar svipaðar og í fjórum öðrum málum sem komu upp í suðvesturríkjum Bandaríkjanna á síðasta ári. Það sem þessir einstaklingar eiga sameiginlegt er að þeir tengdust allir rannsóknum eða verkefnum á vegum Air Force Research Laboratory – rannsóknar- og þróunararms bandaríska flughersins.
Meðal þeirra sem horfið hafa er Steven Garcia, verktaki tengdur öryggisverkefnum, sem hvarf sporlaust eftir að hafa yfirgefið heimili sitt í Albuquerque. Hann hafði, líkt og McCasland, aðeins með sér skammbyssu og engin samskiptatæki.
Fleiri mál tengjast lykilstofnunum í bandarískum vísindum og varnarmálum. Monica Jacinto Reza, vísindakona við Jet Propulsion Laboratory hjá NASA, hvarf í gönguferð í Kaliforníu á síðasta ári. Hún hafði nýverið tekið við stjórn rannsóknarhóps sem vann að þróun nýrrar tækni fyrir eldflaugahreyfla.
Þá hurfu Anthony Chavez og Melissa Casias með skömmu millibili, en bæði höfðu starfað við Los Alamos National Laboratory, eitt mikilvægasta kjarnorkurannsóknasetur Bandaríkjanna.
Sameiginlegt með mörgum þeirra er að þeir höfðu aðgang að viðkvæmum öryggisupplýsingum sem fyrr segir.
Þrátt fyrir aukinn þrýsting frá löggjafarvaldinu hafa bandarísk stjórnvöld gefið misvísandi skilaboð. Varnarmálaráðuneytið hefur meðal annars sagt að engar virkar þjóðaröryggisrannsóknir séu í gangi vegna tilkynntra mannshvarfa.
Hvíta húsið hefur þó staðfest að unnið sé að heildstæðri yfirferð mála í samstarfi við viðeigandi stofnanir. Samkvæmt upplýsingum frá Karoline Leavitt, blaðafulltrúa Hvíta hússins, er markmiðið að greina hvort sameiginleg mynstur eða tengsl finnist á milli tilvika.