fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Maraþonhlaupari fagnaði aðeins of snemma – Sjáðu myndbandið

Pressan
Mánudaginn 20. apríl 2026 10:30

Hann fagnaði aðeins of snemma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maraþonhlaupari í Delaware í Bandaríkjunum þurfti að gera sér 2. sætið að góðu í hlaupi sem fram fór í ríkinu um helgina eftir heldur vandræðalegan lokakafla.

Hlauparinn, Carson Mello, var langfyrstur þegar hann var skammt frá endamarkinu en eins og meðfylgjandi myndband ber með sér áttaði hann sig ekki á því að hlauparinn á eftir honum, Joshua Jackson, nálgaðist óðfluga .

Carson hélt að hann ætti sigurinn vísan og lyfti höndunum upp til að fagna. Um það leyti sem hann var að koma yfir endamarkið skauts Joshua fram úr honum og náði að stela sigrinum eftir hreint ótrúlegan sprett á lokakaflanum.

Joshua, sem er 24 ára og frá Pottstown í Pennsylvaníu, kom í mark á tímanum 2:43:11. Opinber tími Carson var aftur á móti 2:43:13.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og hafa margir bent á það borgi sig aldrei að fagna fyrr en sigurinn er kominn í hús.

Delaware Marathon Running Festival er stærsta hlauphátíð Delaware-ríkis og hefur verið haldin árlega frá árinu 2004.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by THE SUIT GUY (@aktiv8edleem)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Í gær

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár