
Þetta eru 15.000 dollarar, sem svarar til um 1,8 milljóna íslenskra króna, að sögn CHIP sem segir að um tilraunaverkefni sé að ræða.
Reglurnar gilda um fólk frá ákveðnum löndum en reiknað er með að þeim verði síðan fjölgað þegar fram líður. Meðal þeirra landa sem nú þegar eru á listanum eru Túnis, Eþíópía, Georgía og Mongólía.
Markmiðið með að láta fólk greiða þessa tryggingu er að koma í veg fyrir að það dvelji lengur í landinu en það hefur heimild til því það er dýrt fyrir hið opinbera að þurfa að hafa uppi á fólki og senda úr landi.
Ef fólk fylgir reglunum og fer úr landi áður en dvalarleyfi þess rennur út, þá fær það upphæðina endurgreidda.
Yfirvöld segja að verkefnið hafi nú þegar haft þau áhrif sem vænst var því færri stoppi í landinu, eftir að dvalarleyfi þeirra rennur út, en áður.