fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa

Pressan
Mánudaginn 13. apríl 2026 06:00

Það er ekki hollt að sitja með krosslagða fætur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt af því sem margir hugsa ekki út í  er hvernig þeir sitja. Þetta er bara eitthvað sem við gerum ósjálfrátt og hugsum ekki út í. Stundum sitjum við með krosslagða fætur, stundum með þá beina, stundum með þá til hliðar, það er hægt að sitja á svo margan hátt. Heilbrigðissérfræðingur einn segir að ein stelling sé sérstaklega hættuleg og rétt að forðast að sitja í henni.

Tristan Hulbert, forstjóri Vivid Care, segir að það geti verið hættulegt að sitja með krosslagða fætur í langan tíma því það geti aukið líkurnar á blóðtappa mikið.

í samtali við Express sagði hann að margir þeirra, sem vinna á skrifstofum eða heima fyrir framan tölvu, átti sig ekki á að þessi stelling geti verið hættuleg.

Hann sagði að krosslagðir fætur hamli blóðflæðinu í fótunum og geti valdið ástandi sem sérfræðingar kalla „e-thrombosis“.

Hann sagði að það sem gerist, þegar fæturnir eru krosslagðir, sé að þrýstingurinn frá öðrum fætinum á hinn geti dregið úr blóðflæðinu um 30% og það geri skrifborðsstólinn hugsanlega hættulegan heilsunni. „Það sem veldur mér mestum áhyggjum er hversu algengt það er að fólk sitji svona. Farðu bara inn á einhverja skrifstofu eða kaffihús og þú sérð fólk sitja með krosslagða fætur, án þess að vita að það er hamlar hugsanlega blóðflæðinu,“ sagði hann.

Hann ráðleggur kyrrsetufólki að taka sér pásu á 90 mínútna fresti til að hreyfa sig og örva blóðflæðið.

„Ég mæli með 90 mínútna reglunni því það er um það bil eftir þann tíma sem líkaminn fer að finna fyrir áhrifum takmarkaðs blóðflæðis. Stilltu klukku, stattu upp, gakktu að glugganum, aðeins 30 sekúndna hreyfing getur núllstillt blóðflæðið,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik