fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Pressan

Fjöldi ríkra Bandaríkjamanna sækir um „gyllta vegabréfsáritun“ á Nýja-Sjálandi

Pressan
Miðvikudaginn 25. júní 2025 06:30

Frá Nýja-Sjálandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auðugir Bandaríkjamenn eru fremstir í flokki þeirra sem sækja um „gyllta vegabréfsáritun“ til Nýja-Sjálands þessa dagana. Nýsjálenska ríkisstjórnin breytti reglunum um slíkar vegabréfsáritanir fyrr á árinu.

Breytingunum var ætlað að fá auðuga útlendinga til að setjast að í Nýja-Sjálandi. Aðalhugsunin á bak við þetta var að örva efnahagslífið.

Samkvæmt nýju reglunum voru tekjumörkin lækkuð, krafa um enskukunnáttu var felld niður og sá tími, sem umsækjendur verða að eyða á Nýja-Sjálandi, var styttur úr þremur árum í þrjár vikur.

The Guardian segir að nú þegar hafi 189 umsóknir borist fyrir hönd 609 manns. 116 umsóknir bárust í heildina síðasta hálfa þriðja árið áður en reglunum var breytt.

85 umsóknir eru frá Bandaríkjamönnum, 26 frá Kínverjum og 24 frá Hong-Kongbúum. Restin af umsækjendunum er frá ýmsum Asíu- og Evrópuríkjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lykillinn að varanlegu þyngdartapi er fundinn

Lykillinn að varanlegu þyngdartapi er fundinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja
Pressan
Fyrir 3 dögum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum