Brúðurin var skotin til bana þegar hún var að yfirgefa veisluna með eiginmanni sínum og 13 ára syni. Þrír til viðbótar særðust í árásinni að sögn Le Parisien. Einn árásarmannanna lést.
Fjórir grímuklæddir menn komu að veislusalnum í Goult, Vaucluse, og hófu skothríð um klukkan 04.30 að morgni.
Árásarmennirnir komu akandi í Golf 8 bíl og hófu skothríð. Brúðguminn reyndi að flýja með því að bakka bíl fjölskyldunnar og ók á einn árásarmannanna sem lést. Brúðguminn og sonur brúðhjónanna særðust alvarlega.
Lögreglan leitar enn að árásarmönnunum þremur sem sluppu.
Saksóknari rannsakar málið í samvinnu við lögregluna og er unnið út frá þeirri kenningu að morðingjarnir séu meðlimir í skipulögðum glæpasamtökum.
Franskir fjölmiðlar segja að lögreglan vinni aðallega út frá þeirri kenningu að árásin tengist deilum vegna fíkniefnaviðskipta en brúðguminn hefur komið við sögu lögreglunnar vegna samsæris og brota á fíkniefnalöggjöfinni.