fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Hlið helvítis er að deyja út

Pressan
Föstudaginn 6. júní 2025 12:42

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmislegt bendir til þess að gasgígur í Túrkmenistan, sem gengur undir nafninu Hlið helvítis, sé að deyja út en í honum hefur logað eldur stanslaust síðan árið 1971.

Það var árið 1971 sem sovéskir vísindamenn voru að borða eftir jarðgasi nærri bænum Derweze í miðri Karakum-eyðimörkinni. Undir borpallinum fannst gasfyllt hellakerfi sem hrundi og myndaði stóran gíg.

Til að forðast útstreymi metans var ákveðið að keikja í gasinu þar sem menn bjuggust við því að það tæki aðeins nokkra daga að brenna. Það gerðist hins vegar ekki og hefur gígurinn verið eitt helsta kennileiti Túrkmenistans allar götur síðan og dregið að sér fjölda ferðamanna.

Vísindamenn segja að logarnir í gígnum séu farnir að dofna vegna minnkandi streymis af náttúrulegu gasi. Benda þeir á þeir séu þrisvar sinnum minni en áður og sjáist í raun aðeins í nálægð við gíginn.

Gurbanguly Berdymukhamedov, forseti Túrkmenistans, hefur margoft lýst því yfir að hann vilji að gígnum verði lokað og fundnar verði leiðir til að slökkva eldinn.

Nefndi hann meðal annars að mikið væri í húfi vegna umhverfisáhrifa en ekki síður vegna þess að hægt væri að nota gasið á annan hátt í þágu landsmanna. Hefur vinna við þetta staðið yfir og virðist hún hafa borið árangur, að einhverju leyti að minnsta kosti.

Að minnsta kosti tvær nýjar borholur hafa verið boraðar í kringum gíginn til að fanga gas sem ella myndi leita upp á yfirborðið. Þá hafa eldri gasdælur á svæðinu, sem áður höfðu verið teknar úr notkun, verið endurvirkjaðar og virðist gasstreymið til gígsins hafa dregist verulega saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað