Fjöldi fugla í borginni Richmond í Kaliforníu hefur drepist undanfarna mánuði og enn hafa ekki fundist skýringar á þessum dularfulla fjöldadauða.
Fjallað er um málið í tímariti Smithsonian-stofnunarinnar.
Um það bil 50 fuglar hafa drepist á þessu tímabili og í öll skiptin hefur það verið við sömu götuna í borginni. Öll dauðsföllin hafa raunar orðið með svipuðum hætti. Fuglarnir lenda á tilteknum kafla á raflínu við götuna og strax í kjölfarið má heyra hvell og þeir falla dauðir til jarðar.
Fuglarnir sem hafa drepist eru af ýmsum tegundum sem algengar eru í bandarískum borgum, til dæmis dúfur, starrar og krákur.
Íbúum í hverfinu líst ekkert á blikuna og segja málið afar sorglegt.
Beinast liggur við að álykta að fuglarnir hafi allir með tölu fengið raflost og þess vegna drepist en orkufyrirtækið sem sér um rekstur umræddra raflína fullyrðir að svo sé ekki. Raflínurnar hafi verið skoðaðar og séu í góðu ástandi. Samkvæmt reglum víða í Bandaríkjunum eiga raflínur, sem í landinu eru yfirleitt ofanjarðar, að vera þannig úr garði gerðar að öruggt sé fyrir fugla að lenda á þeim og segir fyrirtækið að raflínan þar sem allir þessar fugla hafa drepist sé í samræmi við þessar reglur.
Tveir af hinum dauðu fuglum voru sendir í rannsókn hjá Náttúrufræðistofnun Kaliforníu og niðurstaðan var að engin merki væru um að þeir hefðu drepist af völdum raflosts. Þvert á móti virtust áverkarnir á þeim vera af völdum einhvers konar vopns líklega loftbyssu eða teygjubyssu.
Myndir af öðrum fuglum sem drepist hafa í hverfinu sýna sams konar áverka. Stofnunin gat hins vegar ekki komist að nákvæmri niðurstöðu um hvað varð fuglunum að bana.
Íbúar í hverfinu eiga bágt með að trúa því að einhver sé vísvitandi að drepa alla þessa fugla og þaðan af síður að viðkomandi hitti í mark með vopni sínu í hvert einasta skipti.
Málið er enn til rannsóknar hjá yfirvöldum en íbúar segja að þeir vilji einfaldlega að málið verði leyst og nákvæmar skýringar fáist á því hvers vegna svona margir fuglar hafa drepist í þessari tilteknu götu á þessari tilteknu raflínu.