Það er einmitt það sem 31 árs móðir frá Sjálandi í Danmörku er ákærð fyrir. Samkvæmt ákæru á hendur henni, saumaði hún hlerunarbúnað inn í bangsann til að geta hlustað á einkasamtöl í skóla sonarins og heima hjá föður hans.
Konan er ákærð fyrir fjölda alvarlegra lögbrota sem flest beindust gegn barnsföður hennar. Svo virðist sem um heiftúðugar fjölskyldudeilur sé að ræða sem fóru algjörlega úr böndunum.
Samkvæmt ákærunni þá kom konan hlerunarbúnaðinum fyrir í bangsanum og saumaði hann saman. Síðan lét hún soninn fara með bangsann í skólann og síðar um daginn heim til föður hans. Með þessu gat hún hlustað á einkasamtöl.
Auk þess að hlera einkasamtöl er konan ákærð fyrir að hafa logið til um málsatvik þegar hún kærði mál til barnaverndaryfirvalda og lögreglunnar þegar hún kærði kynferðisofbeldi gegn börnum sínum. Hún sagði að barnsfaðir sinn hefði beitt börn þeirra kynferðislegu ofbeldi.
Til að afla sannana fyrir þessu tók hún upp samtöl við börn þeirra og reyndi að fá þau til að segja að faðir þeirra hefði beitt þau kynferðislegu ofbeldi.
Konan er einnig ákærð fyrir að hafa í samvinnu við óþekktan mann haft í hótunum við barnsföðurinn með því að hóta honum að birta kynferðislegt efni á Facebook og Snapchat ef hann væri ekki samvinnuþýðir í tengslum við málsmeðferðina varðandi forræði og umgengnisrétt við börnin þeirra.