Vivian Polonia, dómari í Kólumbíu, var í gær send í þriggja mánaða leyfi fyrir að vera hálfnakin og reykjandi á meðan hún dæmdi í máli sem tekið var fyrir á Zoom í síðustu viku. Um nokkuð alvarlegt dómsmál var að ræða en það snérist um bílasprengjur sem beint var að hersveit í borginni Cúcuta í júní árið 2021.
Polonia var með slökkt á myndavélinni í um klukkutíma á meðan málið var tekið fyrir en síðan kveikti hún á henni. Þá sást hún liggja í rúminu sínu á nærbuxunum að reykja sígarettu. Þegar lögmaður á Zoom-fundinum sagði Polonia að hún væri með kveikt á myndavélinni var hún fljót að slökkva á henni.
Myndband af þessu öllu saman fór í mikla dreifingu og var fjallað um málið í fjölmiðlum í Kólumbíu. Í kjölfarið var aganefnd falið að rannsaka málið, nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Polonia væri ekki hæf til að sinna starfi sínu því hún bar ekki virðingu fyrir þeim sem voru á fundinum. Var hún því send í leyfi fram yfir næstkomandi febrúar.
Polonia hefur opnað sig um málið en hún heldur því fram að hún hafi lagst í rúmið því hún var með lágan blóðþrýsting og að fá kvíðakast. Þá segist hún vera útkeyrð og að þess vegna sé geðheilsan hennar ekki góð.
Einnig segist Polonia vera lögð í einelti af öðrum dómurum vegna þess hvernig hún klæðir sig. Hún hefur einmitt áður sætt rannsóknum vegna mynda sem hún birtir á samfélagsmiðlum sínum. Á Instagram-síðu dómarans er að finna fjölmargar myndir af henni fáklæddri en aðrir dómarar hafa ekki tekið vel í að hún deili slíkum myndum á Instagram.
View this post on Instagram
Polonia einnig fengið að heyra það fyrir að mæta í stuttbuxum og stuttermabolum í vinnuna, hún sagðist ekki geta verið í buxum vegna hitans. Hún segir að um þetta leyti hafi hún uppgötvað CrossFit og í kjölfarið komist í betra form. Við það ákvað hún að mæta í síðum kjólum í vinnuna frekar en stuttbuxum en þá var hún einnig gagnrýnd fyrir að vera „of kynæsandi“.
Það virðist ekki vera sem Polonia láti þetta á sig fá en hún segist vera þreytt á því að gera öðrum til geðs. Í kjölfar umfjöllunar um Zoom-fundinn sagðist hún ekki ætla að breyta persónuleika sínum fyrir aðra.