Lögreglumaður var myrtur á götu úti í Brussel í Belgíu í gær. Annar er alvarlega særður. Árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögreglumönnum. Vitni segja að hann hafi öskrað „allahu akbar“ þegar hann réðst á lögreglumennina. Lögreglan rannsakar nú hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Árásin var gerð í Aarschostraat, sem er fræg gata í Brussel. Belgískir fjölmiðlar segja að árásarmaðurinn hafi ráðist á lögreglumennina með hníf að vopni. Lögreglumaðurinn, sem lést, var á þrítugsaldri. Hann var að sögn stunginn í hnakkann. Hinn lögreglumaðurinn er alvarlega særður.
Kallað var á liðsauka á vettvang og skutu lögreglumenn, sem komu félögum sínum til aðstoðar, árásarmanninn til bana að sögn De Standaard. Hann er sagður hafa verið skotinn í fótlegg og í magann.