Pressan

Heilar unglinga eru næstum jafn viðkvæmir og heilar kornabarna

Mynd
Unglingar eru viðkvæmir fyrir áföllum. Mynd:Getty

Það getur haft mikil og varanleg áhrif á börn ef þau verða fyrir slæmri lífsreynslu á fyrsta aldursárinu. Af þeim sökum leggur heilbrigðisstarfsfólk mikla áherslu á að styðja börn, sem lenda í slíku, og fjölskyldur þeirra. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að þróun heilans á unglingsárunum opni fyrir bæði neikvæð og jákvæð áhrif á heilann.

Það voru danskir vísindamenn sem gerðu rannsóknina. „Það sem vekur mesta athygli er að neikvæð félagsleg upplifun á unglingsárunum veldur meiri skaða en á fyrstu 1.000 dögum lífs barns,“ hefur 

TV2

 eftir Signe Hald Andersen, prófessor, sem vann að rannsókninni.

Rannsóknin beindist að áhrifum neikvæðrar félagslegrar upplifunar á unglinga og hvernig slík upplifun getur haft áhrif allt lífið. Þetta getur til dæmis verið atvinnuleysi foreldra, afbrot, andleg veikindi og andlát.