fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Nýjasta veðurspáin sýnir að danska hitametið frá 1975 gæti fallið í dag

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. júlí 2022 05:59

Spákort dagsins. Mynd:DR Vejret

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt veðurspá dönsku veðurstofunnar, DMI, sem var birt í morgun þá er „klárlega mögulegt“ að danska hitametið frá 1975 verði slegið í dag.

„Það gæti fallið. Það er hugsanlegt,“ hefur Jótlandspósturinn eftir Anna Christiansson, vakthafandi veðurfræðingi.

Hæsti hiti sem mælst hefur í Danmörku er 36,4 gráður en sú mæling var gerð þann 10. ágúst 1975 í Holsterbro á Jótlandi.

Ef metið fellur í dag þá fellur það á Jótlandi en þar verður hlýjast í dag. Samkvæmt spám verður hitinn kominn í um og yfir 30 gráður töluvert fyrir hádegi víða á Jótlandi og áfram mun hlýna fram eftir degi.

„Það lítur út fyrir að við komumst upp í 35-36 gráður á Jótlandi. Við syðsta hlutann og vestasta hlutann er rönd þar sem mesti hitinn verður. Það er þangað sem loftið berst frá Þýskalandi,“ sagði Chistiansson.

Hitinn mun væntanlega ná hámarki um klukkan 15 og þá fellur metið hugsanlega.

DMI sagði í gær að líklega muni metið falla, ef það fellur, í bænum Store Jyndevad sem er við þýsku landamærin. Hann liggur vel við suðaustan vindinum sem ber heitt loft upp til Danmerkur í dag.

En þótt þetta hitamet falli ekki gæti annað hitamet fallið í dag. Það er hæsti hiti sem mælst hefur í júlí. Hann er 35,3 gráður og telja veðurfræðingar mjög líklegt að það met falli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta