fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Kórónuveirusmitum fjölgar mikið víða í Evrópu – 4 mánaða útgöngubann

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. október 2021 07:59

Heimsfaraldur kórónuveiru er örugglega ekki síðasti heimsfaraldurinn.Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víða í Evrópu er kórónuveiran nú í mikilli sókn, sérstaklega í austurhluta álfunnar. Í síðustu viku tilkynntu yfirvöld í Lettlandi og Rússlandi um nýjar sóttvarnaaðgerðir sem verða að teljast ansi harðar.

Í Rússlandi hefur hvert dapurlega metið á fætur öðru verið slegið að undanförnu hvað varðar fjölda smita og andláta af völdum COVID-19. Til að bregðast við þessu hafa borgaryfirvöld í Moskvu, þar sem ástandið er einna verst, ákveðið að frá og með 28. október til 7. nóvember megi aðeins þær verslanir vera opnar sem selja nauðsynjavörur á borð við mat og lyf.

Einnig hafa borgaryfirvöld fyrirskipað öllum borgarbúum 60 ára og eldri, sem ekki hafa verið bólusettir, að halda sig heima næstu fjóra mánuði. Fyrirtæki í borginni eiga að láta að minnsta kosti þriðja hvern starfsmanna vinna að heiman.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO segir að sjö prósent aukning hafi orðið á smitum í Evrópu síðustu vikuna. Hans Kluge, svæðisstjóri WHO í Evrópu, segir að búið sé að bólusetja um þriðjung íbúa álfunnar. „Það verður að hækka bólusetningarhlutfallið. Það verður að jafna út muninn á bólusetningarhlutföllum á milli hinna ýmsu ríkja,“ sagði hann.

Rússar hafa farið verst út úr heimsfaraldrinum af Evrópuþjóðum ef litið er til andláta en um 228.000 hafa látist þar í landi. Þetta eru opinberar tölur en margir telja að raunverulegar andlátstölur séu miklu hærri, jafnvel rúmlega 400.000.

Ef andlátin eru skoðuð sem hlutfall af íbúafjölda þá er dánartíðnin mun hærri í öðrum ríkjum. Á toppnum trónir Bosnía-Hersegóvína með 3.408 andlát á hverja eina milljón íbúa og er ríkið raunar í öðru sæti á heimsvísu hvað þetta varðar. Aðeins í Perú er hlutfallið hærra eða 6.150 andlát á hverja milljón íbúa.

Í Lettlandi hefur smitum fjölgað mikið og hafa ekki greinst fleiri síðan heimsfaraldurinn skall á. Tæplega helmingur þjóðarinnar, sem telur 1,9 milljónir, hefur lokið bólusetningu. Nú verður öllum verslunum og fyrirtækjum, sem ekki teljast til lífsnauðsynlegrar starfsemi, lokað. Fjarkennsla verður tekin upp á nýjan leik í skólum og útgöngubann verður í gildi á milli klukkan 20 og 05.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða