fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Þetta er samsæriskenningin sem tröllríður heimi samsæriskenningasmiða í dag – Gjörbreyttur heimur 2030

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 13. október 2021 06:11

Samsæriskenningasmiður að störfum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir aðeins níu ár verður heimsmyndin allt önnur en hún er í dag. Þú munt ekki eiga neitt, þú munt lifa í lögregluríki og það verður fylgst með þér öllum stundum í gegnum örflögur sem eru í bóluefnum sem þú færð. Á toppnum mun hópur mjög valdamikilla aðila sitja og stjórna þessu öllu.

Hljómar ekki spennandi, eða hvað? En svona hljóðar sú samsæriskenning sem er á einna mesta fluginu þessa dagana. Kenningin nefnist „The Great Reset“ og er sótt í framtíðarsýn sem var lögð fram á World Economic Forum í Davos í Sviss.

Það má segja að um tvo hluti sé að ræða varðandi „The Great Reset“.

Annar er upprunalega kenningin sem var lögð fram á World Economic Forum. Þar hittast stjórnmálamenn og auðjöfrar árlega og ræða stöðu heimsmála og framtíðarsýn sína. Þar var „The Great Reset“ lagt fram sem framtíðarsýn á hvernig heimurinn mun þróast eftir heimsfaraldur kórónuveirunnar. Sýnin nær til 2030 og í henni eru loftslagsmál, skuldir og heimsfaraldur kórónuveirunnar aðalefnin.

Hinn er samsæriskenningin sem er sótt í „The Great Reset“ framtíðarsýnina. Samkvæmt henni þá eru heimsfaraldurinn, sóttvarnaaðgerðir og bólusetningar hluti af áætlun World Economic Forum um breytta heimsmynd. Er World Economic Forum sagt vera í fararbroddi og skipa leiðtogum ríkja heims fyrir. Einn þátturinn í samsæriskenningunni er síðan Bill Gates, sem virðist ekki sleppa við margar samsæriskenningar, sem er sagður standa fyrir því að verið sé að setja örflögur í mannkynið í gegnum bóluefnin gegn kórónuveirunni. Annar hluti kenningarinnar er að bóluefnin séu miklu verri en sjálf veikindin af völdum kórónuveirunnar. Samkvæmt kenningunni mun þetta allt enda með að enginn mun eiga nokkuð, við munum búa í lögregluríki sem verður stýrt af Klaus Schwab, stofnanda World Economic Forum, og Bill Gates.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?