Breskur barnabókahöfundur, James Nash, liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir morðtilraun.
Lögregla var kölluð til eftir tilkynningar um skothvelli og hófu eftirför eftir meintum geranda sem reyndi að flýja af vettvangi á mótorhjóli. Við eftirför lögreglu lenti hinn grunaði í árekstri og lét lífið samstundis.
Nágrannar lýsa James Nash sem hlýjum einstakling sem er annt um umhverfið sitt. „Hann skrifar barnabækur og er listamaður. Ég þekki til hans og hef talað við hann en myndi þó ekki telja hann sem vin. Hann er góður maður. Hann myndi bókstaflega gera allt fyrir mann. Hann er virkilega hjálpsamur.“