fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Dularfullar fræsendingar til mörg þúsund heimila – Hver stendur á bak við þær?

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 31. júlí 2020 06:45

Ein af fræsendingunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að undanförnu hafa dularfullar sendingar, sem innihald fræ, borist inn um bréfalúgur á mörg þúsund bandarískum heimilum. Viðtakendurnir áttu ekki von á þessum fræjum og höfðu ekki pantað þau. Vitað er að þau eru frá Kína en ekki er vitað hver stendur á bak við þessar sendingar.

Bandarísk yfirvöld vara fólk við að planta fræjunum. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að bandaríska landbúnaðarráðuneytið sé nú að rannsaka málið ásamt fleiri alríkisstofnunum. Almenningur er hvattur til að tilkynna yfirvöldum um sendingar af þessu tagi og að láta eiga sig að planta fræjunum. Eins og er vinna yfirvöld út frá þeirri kenningu að um einhverskonar svikastarfsemi sé að ræða.

„Við vitum ekki hvað þetta er og við getum ekki tekið áhættu á að skaða landbúnaðinn í Bandaríkjunum. Við erum með mesta fæðuöryggi heimsins og þannig á það að vera áfram.“

Sagði Ryan Quarles, hjá landbúnaðaryfirvöldum í Kentucky, en margar sendingar af þessu tagi hafa borist til Kentucky.

„Eins og staðan er núna höfum við ekki nægar upplýsingar til að vita hvort um svindl eða hrekk er að ræða, internetsvik eða landbúnaðarhryðjuverk. Óþekkt fræ geta verið af ágengum tegundum og haft eyðileggjandi og óæskileg áhrif á umhverfið okkar.“

Sagði Quarles.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu