fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Bill Gates varaði við heimsfaraldri 2015 – „Það hefði átt að gera meira til að undirbúa baráttu við heimsfaraldur.“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2020 08:00

Bill Gates er ekki á flæðiskeri staddur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefði átt að gera miklu meira til að undirbúa baráttu við heimsfaraldur segir mannvinurinn Bill Gates. Hann segir að ríkisstjórnir heimsins hafi ekki verið viðbúnar kórónuveirufaraldrinum sem nú geisar og að flest ríki heims hafi látið sitja á hakanum að undirbúa sig undir heimsfaraldur.

Þetta sagði hann nýlega í samtali við BBC þar sem hann gagnrýndi þjóðarleiðtoga.

„Mjög fá ríki munu fá hæstu einkunn fyrir viðbrögð og aðgerðir við faraldrinum.“

Gates hætti nýlega í stjórn Microsoft, sem hann stofnaði ásamt Paul Allen árið 1975, til að geta varið meiri tíma í ýmis mannúðarstörf tengd heilbrigði og menntun.

Gates sagði í viðtalinu að hugsanlega séu 18 mánuðir í að bóluefni gegn COVID-19 verði tilbúið til notkunar.

„Það hefði átt að gera meira til að undirbúa baráttu við heimsfaraldur.“

Sagði hann en Gates varaði við hættunni á heimsfaraldri, á borð við þann sem nú geisar, í Ted Talk fyrirlestri árið 2015. Þá sagði hann að tími væri kominn til að skipuleggja rannsóknir á bóluefnum og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks ef ný veira myndi herja á heimsbyggðina.

„Ef eitthvað drepur rúmlega 10 milljónir manna á næstu áratugum verður það líklega mjög smitandi veira frekar en stríð. Við höfum eytt miklu fé í kjarnorkuvopn til fælingar en við höfum raunar fjárfest mjög lítið í kerfi til að stöðva heimsfaraldur. Við erum ekki undir slíkan faraldur búin.“

Sagði hann meðal annars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Í gær

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Pressan
Í gær

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Í gær

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist