fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Pressan

Vísindamenn segja að kengúrur geti átt í markvissum samskiptum við fólk

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 20. desember 2020 15:30

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að kengúrur geta átt í samskiptum við fólk og það ekki fyrir tilviljun heldur af ásettu ráði. Þetta bendir til að þær búi yfir meiri vitsmunum en áður var talið.

Það voru vísindamenn við University of Sydney og University of Roehampton í Lundúnum sem gerðu rannsóknina. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að vísindamennirnir hafi lagt „óleysanlega þraut“ fyrir kengúrur. Í henni fólst að matur var inni í kassa sem þær gátu ekki opnað. Alexandra Green, einn af höfundum rannsóknarinnar, sagði að í stað þess að gefast upp hafi stór meirihluti kengúranna litið á vísindamanninn og aftur á kassann, hreyfing sem var túlkuð sem beiðni um hjálp. „Sumar þeirra gengu meira að segja að honum og byrjuðu að klóra og þefa af honum og líta síðan á kassann, svo þær voru í raun að reyna að eiga í samskiptum við hann,“ er haft eftir Green.

Svipuð hegðun hefur sést hjá öðrum dýrum þegar þau biðja fólk um hjálp en Alan McElligott, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að almennt ætti þetta bara við um dýr sem fólk hefur haldið sem húsdýr öldum saman. „Kengúrur sýndu sama hegðunarmynstur og við höfum séð hjá hundum, hestum og jafnvel geitum sem hafa fengið sama próf,“ sagði hann.

Hann sagði að þetta styðji við hugmyndir um að hvaða dýr sem er geti lært að eiga í samskiptum við aðrar tegundir ef það býr yfir nægilega öflugri heilastarfsemi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu