fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Fjórar vikur í kosningar og allt bendir til að Trump og Repúblikanar tapi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. október 2020 06:59

Baráttan um framtíð flokksins er hafin enda dagar Trump í Hvíta húsinu brátt taldir. Mynd: Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru tæpar fjórar vikur í að Bandaríkjamenn gangi að kjörborðinu og kjósi forseta til næstu fjögurra ára. Þeir kjósa einnig um þriðjung sæta í öldungadeildinni og öll þingsætin í fulltrúadeildinni. Miðað við skoðanakannanir þá hafa Repúblikanar fulla ástæðu til að hafa áhyggjur því allt stefnir í að þeir tapi forsetaembættinu og meirihlutanum í öldungadeildinni til Demókrata. Demókratar virðast einnig öruggir um að halda áfram meirihluta sínum í fulltrúadeildinni.

Tveir atburðir á undanförnum dögum gætu hafa gert stöðu Repúblikana enn verri. Fyrst voru það ömurlegar sjónvarpskappræður Trump og Joe Biden en meirihluta Bandaríkjamanna þótti Trump standa sig verr þar og er þá ekki verið að halda því fram að Biden hafi staðið sig vel, bara betur en Trump. Hinn atburðurinn er auðvitað veikindi Trump sem greindist með COVID-19 fyrir helgi.

Ný könnun, sem CNN gerði, sýnir að 63% Bandaríkjamanna þykir Trump hafa hegðað sér á óábyrgan hátt eftir að hann greindist með COVID-19. 33% sögðu hann hafa hegðað sér á ábyrgan hátt.

Í samanburði RealClearPolitics á niðurstöðum skoðanakannana kemur fram að Biden er að meðaltali með 8,5 prósentustiga forskot á Trump. Niðurstöður kannana sem Washington Post og Wall Street Journal gerðu á sunnudaginn sýna að Trump er 14 prósentustigum á eftir Biden á landsvísu.

FiveThirtyEight, sem er netmiðill í eigu þekktasta kosningagreinanda Bandaríkjanna, Nate Silver, sagði í gær að það sé 81% öruggt að Biden verði næsti forseti.

Samkvæmt könnunum mun Biden sigra í iðnaðarríkjunum Wisconsin, Michigan og Pennsylvania en Trump sigraði óvænt í þeim 2016. Biden nýtur einnig góðs stuðnings í hefðbundnum íhaldsríkjum í Suðurríkjunum, þar á meðal Norður-Karólínu, Texas og Arizona. Samkvæmt skoðanakönnunum er hann nú með forystu í Flórída.

Vandi Repúblikana er hugsanlega einna augljósastur í baráttunni um öldungardeildarsæti hins mjög svo íhaldssama ríkis Suður-Karólínu. Þar stefndi allt í mjög öruggan sigur Lindsey Graham, sem er tryggur stuðningsmaður Trump, en svo er ekki lengur. Skoðanakannanir sýna jafnt fylgi hans og Demókratans Jaime Harrison. Þá eru öldungardeildarsæti Repúblikana í Arizona, Iowa, Maine og Norður-Karólínu í hættu. Ef Demókratar vinna þau ná þeir væntanlega meirihluta í öldungadeildinni.

En allt eru þetta bara niðurstöður skoðanakannana og tæpar fjórar vikur eru langur tími í stjórnmálum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu