fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða sex vikna son sinn

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 6. desember 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lee Vernon, 21 árs, var nýlega dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt sex vikna son sinn. Mckenzie Ellis varð fyrir alvarlegum höfuðáverkum af völdum misþyrminga Vernon í Broadstairs í Kent á Englandi á síðasta ári. Hann lést þremur dögum síðar á gjörgæsludeild í Lundúnum.

Sky skýrir frá þessu. Fram kemur að Vernon hafi verið sakfelldur fyrir morð og alvarlega líkamsárás. Fyrir dómi sagði Vernon að sonur hans hafi verið meðvitundarlaus af óþekktum ástæðum þegar hann hringdi í neyðarlínuna þann 23. júlí 2018. Þegar neyðarvörður spurði hann hvort hann hefði meitt litla drenginn sagði hann:

„Nei, ekki þannig séð.“

Þegar lögreglan yfirheyrði hann sagðist hann hafa misst drenginn úr fangi sínu og hafi hann rekist á sófaarm áður en hann lenti á gólfinu.

Krufning leiddi í ljós að drengurinn var með marga áverka, suma hafði hann hlotið töluvert áður en hann lést.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Starfsmaður í dagvistun ákærður – Sló tvo unga sofandi drengi

Starfsmaður í dagvistun ákærður – Sló tvo unga sofandi drengi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Farþegum fjölgaði um einn í háloftunum – Fæddi hálftíma fyrir lendingu

Farþegum fjölgaði um einn í háloftunum – Fæddi hálftíma fyrir lendingu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var