fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Englaskóli Mörthu Lovísu skilar litlum hagnaði

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 19:30

Martha prinsessa og Shaman Durek Verrett unnusti hennar. Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Noregi er ekki farið leynt með hvað fólk hefur í tekjur því árlega er skattskráin opinberuð en í henni er hægt að sjá tekjur allra Norðmanna. Fáir eru undanskildir og  ekki einu sinni allir konungbornir sleppa við tekjubirtingu. Skattskrá síðasta árs var birt fyrir nokkrum dögum. Fjölmiðlar hafa að vonum fjallað um hana og þar á meðal um tekjur Mörthu Lovísu elsta barns konungshjónanna.

Hún hefur frá 2007 rekið svokallaðan englaskóla með Elisbeth Nordeng. Í gegnum árin hafa þær þénað milljónir á að kenna og flytja fyrirlestra um englatrú sína en á síðustu misserum hafa tekjurnar dregist umtalsvert saman segir í umfjöllun seher.no.

Fram kemur að 2017 hafi tekjur Mörthu Lovísu verið 1,87 milljónir norskra króna en á síðasta ári voru þær 600.000 krónur. Á sama tíma hafa eignir hennar rýrnað töluvert eða úr 4,9 milljónum 2017 niður í rétt rúmlega 2 milljónir á síðasta ári.

Ekki er skýrt frá tekjum og eignum konungshjónanna eða krónprinsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?