fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
EyjanNeytendur

Jóri hvetur fólk til að endurvinna og hugsa betur um jörðina – „Það eru margir að gera heilmikið til að skilja minna fótspor eftir sig“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 30. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í heimildaþáttunum Hvað höfum við gert? sem sýndir eru á RÚV er fjallað um loftslagsbreytingar á jörðinni, hvað valdi þeim, hvaða áhrif þær hafi og hvernig við getum brugðist við þeim. Fjallað er um áhrif neysluhyggju nútímans á loftslagsbreytingar og hvaða lausnir við getum komið með til að draga úr breytingunum og aðlagast nýjum og sjálfbærari lifnaðarháttum.

Þættirnir hafa hreyft við mörgum og vakið upp umræðu í þjóðfélaginu. Jórmundur Kristinsson, eða Jóri, 27 ára gamall nuddari og hjúkrunarfræðinemi sem búsettur er í Grindavík er einn af þeim sem urðu fyrir miklum áhrifum vegna þáttarins. Helgina sem fyrsti þátturinn var sýndur stofnaði hann hóp á Facebook, Hvað getum við gert?, þar sem „markmiðið er að fá fólk til að tala saman, deila, spá og spekúlera, því við getum þetta ekki nema saman.“

Jóri segir: „Ég hef miklar áhyggjur af lífsháttum okkar og áhrifum sem við höfum á umhverfið og lífríkið. Ég hef á síðustu árum verið að taka mína lífshætti í gegn og reynt að gera þetta litla sem venjuleg heimili geta gert. Ég horfði síðan á þáttinn Hvað höfum við gert? á RÚV um daginn og ég hreinlega grét. Ég áttaði mig á að það þarf að gera svo miklu meira en að flokka rusl og fara með fjölnota poka út í búð. En hvað? Hvað getum við gert? Þannig kom hugmyndin að hópnum. Hálfgert svar við þessum þætti og þessu vandamáli. Þarna getur fólk deilt hugmyndum og vangaveltum, gjörðum og markmiðum sem stefna á betri lífshætti.“

En hvaða skref ert þú sjálfur að taka til að hugsa betur um jörðina, endurvinna og annað?

„Ég reyni að minnka plastnotkun þar sem ég get, nota sápur, sjampó, tannkrem, tannbursta sem eru ekki í umbúðum til dæmis. Ég segi nei við einnota drasli eins og kaffibollum, hnífapörum og rörum. Ég keyri um á hybrid-bíl, ég borða ekki kjöt, ég kaupi ekki föt nema þau hafi vottun um sanngjarna og sjálfbæra framleiðslu. Þetta eru hlutir sem allir geta gert,“ segir Jóri og bætir við að þetta hafi engin áhrif á lifnaðarhætti manns, en ef allir gerðu þetta hefði það stór áhrif á heildarmyndina. „Þú þarft ekki nýjasta tækið, nýjasta bolinn, nýjasta þetta og nýjasta hitt. Láttu hlutina endast, á bak við hvern hlut sem þú átt er stór slóð af framleiðsluferli, sem því miður er ekki alltaf fallegt, þetta er ekki einnota og þetta vex ekki á trjám. Við þurfum ekki allt. Ég sjálfur er alls ekki saklaus, en ég er alltaf að reyna að gera betur, og það ættu allir að gera.“

Myndi verðlaunakerfi hvetja fólk til endurvinnslu?

Jóri býr í Grindavík og nýlega kom græna tunnan í bæjarfélagið. Jóri segir að fólk sé að reyna að endurvinna, en hins vegar sé lítil hvatning til þess. Sem dæmi megi nefna vandamál í fjölbýli, þar séu of fáar tunnur, þær fyllist fljótt og fólk gefist upp. „Það nennir ekki að flokka því það er ekki pláss í tunnunni. Mér finnst líka að til að þetta virki þá þyrfti að vera smá verðlaunakerfi, líkt og með dósir og endurgjald eða eitthvað í þá áttina. Ég veit ekki hvernig, en kannski veit það einhver annar, til þess er hópurinn. Veist þú hvernig við getum vakið áhuga hjá fólki að flokka rusl?“

Hópurinn fór vel af stað og strax á fyrsta degi voru meðlimir orðnir 200, í dag eru þeir að nálgast 500. „Fólk er að taka þátt í umræðum og það eru margir að gera heilmikið til að skilja minna fótspor eftir sig. Ég vona að fleiri komi í hópinn og taki þátt í umræðunni. Við verðum að gera eitthvað, við komumst ekki hjá því, ekki lengur. Gerum þetta saman. Verðum góðar fyrirmyndir og skiljum eftir betri heim fyrir komandi kynslóðir.“

Hér fyrir neðan eru nokkrar setningar úr fyrsta þætti Hvað höfum við gert?

„Jörðin er eina heimili okkar og við erum að fara illa með hana.“

„Það að draga úr neyslu, nota minna af auðlindum, fara betur með, það er kjarni málsins. Við leysum ekki vandamál með því að búa til meira drasl með betri hætti. Við leysum vandamálið með því að nota minna drasl.“  – Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur

„Við gætum orðið fólkið sem tók það á sig að breyta framtíðinni til góðs.“ – Guðni Elísson, prófessor við íslensku- og menningardeild HÍ

„Eins og staðan er í dag þá erum við á braut sem er stórhættuleg.“ – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs

„Þessi áhrif eru alþjóðleg, það er ekki hægt að flýja eitt né neitt.“ – Guðmundur Hálfdánarson, forseti Hugvísindasviðs HÍ

„Ósjálfbær lífsstíll okkar mannanna breytir ekki aðeins veðurfari og loftslagi á jörðinni heldur útrýmir dýra- og plöntutegundum, mengar vatn, sýrir hafið og sóar og ofnýtir dýrmætar og takmarkaðar auðlindir. Náttúran ræður ekki við hvernig við högum lífi okkar, svo vistkerfið lætur undan.“ – Sævar Helgi Bragason, umsjónarmaður þáttanna

„Njótum partísins meðan það endist og svo er þetta búið.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“