fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Matur

Wok On styrkir Píeta samtökin

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 10. maí 2023 16:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og glöggir viðskiptavinir Wok On hafa eflaust tekið eftir eru rauðu „take away“ boxin hjá Wok On orðin gul en þau munu vera það út maí. Ástæðan fyrir þessum breytta lit er að 50 krónur af hverjum seldum rétt renna beint til Píeta samtakanna sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða ásamt því að styðja við aðstandendur.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem „take away“ box Wok On taka litabreytingum en síðastliðinn október voru þau bleik til stuðnings Bleiku slaufunnar, átaksverkefnis Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Wok On, með hjálp viðskiptavina sinna, náði að styrkja Bleiku slaufuna um meira en milljón krónur.

„Við erum einkar ánægð með þetta framtak Wok On. Okkur hefur lengi langað til að vera partur af verkefni sem þessu og það er ánægjulegt að sjá Wok On stíga upp og svara kallinu. Á tímum sem þessum, þar sem vitundarvakning um sjálfsvíg og sjálfsskaða er sífellt meira áberandi, er mikilvægt að samfélagið allt stígi inn í umræðuna. Margt smátt verður eitt stórt,“ segir Kristín Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Píeta-samtakanna.

„Hugmyndin að verkefninu spratt upp í kjölfar góðs gengis í október. Liturinn er engin tilviljun, lógó Píeta samtakanna er gult, rétt eins og boxin, og vonumst við til þess að fólk tengi litinn við samtökin og það mikilvæga starf sem þau vinna. Það er heiður að fá að taka þátt í jafn verðugu verkefni og þessu og við hlökkum til að láta gott af okkur leiða,“ segir Elfa Rut Gísladóttir markaðsstjóri Wok On.

Elfa Rut Gísladóttir markaðsstjóri Wok On

Píeta veitir fyrstu hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og stunda sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur til boða öllum þeim sem hafa náð átján ára aldri. Píeta samtökin vinna einnig að því að efla þekkingu og skilning á sálrænum sársauka og sjálfsvígum. Samtökin vilja vera leiðandi í forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum á Íslandi. Sími Píeta samtakanna, 552-2218, er opinn allan ársins hring.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa