fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Páskaljúfmeti úr smiðju Berglindar

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 5. apríl 2023 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páskarnir eru á næsta leyti og þá er vel við hæfi að gera vel við sig í ljúffengum mat. Þessi ljúffenga páskakaka kemur úr smiðju matardrottningarinnar Berglindar Hreiðarsdóttir sem heldur út matarvefnum Gotterí og gersemar.

„Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og ég elska bæði hrískökur og marengs svo hér kemur algjör negla! Ég ákvað að prófa að nota formkökuform í stað þess að notast við hringlaga og þetta kom virkilega skemmtilega út svona, líka mjög þægilegt að skera sneiðar á þennan hátt. Síðan elska allir hrískökur svo ég gerði stærri uppskrift en þurfti í formið til þess að geta gert nokkur hreiður líka og þetta var ansi vinsælt í fjölskyldukaffinu á þessu heimili! Það er síðan geggjað að setja Dumle karamellur í hrískökuuppskriftina, namm sko!“

Þessi uppskrift gefur eina ílanga páskaköku með hrískökubotni, bananarjóma, marengs og páskaeggjarjóma ásamt 10-12 páskahreiðrum sem fylla má með súkkulaðieggjum.

Marengsbotn uppskrift

2 eggjahvítur
100 g púðursykur

Hitið ofninn í 120°C og klæðið formkökuform að innan með bökunarpappír.
Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til stífþeytt.
Setjið í formkökuformið og bakið í 40 mínútur.
Leyfið marengsinum að kólna áður en þið lyftið honum uppúr í bökunarpappírnum og setjið kökuna saman.
Best finnst mér að gera marengsinn deginum áður ef ekki fyrr og geyma hann á þurrum stað.

Hrískökubotn og hreiður

60 g smjör
250 g dökkt súkkulaði
70 g Dumle karamellur
180 g sýróp (í grænu dósunum)
160 g Rice Krispies
PAM matarolíusprey

Pressið bökunarpappír niður í ílangt formkökuform og leggið til hliðar.
Spreyið smá PAM í ál-bollakökuform (í 10-12 hólf).
Setjið allt nema Rice Krispies í pott, hitið þar til bráðið og leyfið blöndunni aðeins að „bubbla“ við háan hita áður en þið takið af hellunni.
Leyfið þá hitanum aðeins að rjúka úr blöndunni og blandið Rice Krispies saman við.
Setjið tæplega helminginn í formkökuformið, þjappið aðeins niður og sléttið. Formið sem ég notaði er frá ömmu, 11 x 29 cm að stærð en auðvitað má nota aðeins minna/stærra.
Setjið síðan kúpta matskeið af blöndu í hvert bollakökuhólf og þrýstið miðjunni niður og aðeins upp kantana með skeið.
Kælið hvorutveggja á meðan þið útbúið fyllinguna.

Karamellusósa uppskrift

120 g Dumle karamellur
60 ml rjómi

Bræðið saman þar til kekkjalaust, leyfið að ná stofuhita áður en sósan er notuð á kökuna.

Fylling, skraut og samsetning

400 g þeyttur rjómi
1 banani
4-5 pokar Cadbury mini eggs

Skerið bananann í litla bita og blandið saman við um 2/3 af rjómanum.
Skerið einn súkkulaðieggjapoka gróft niður.
Leggið ílanga hrískökubotninn á fallegan disk og smyrjið bananarjómanum yfir hann og setjið síðan smá karamellusósu þar yfir.
Næst fer marengsbotninn ofan á og restin af þeytta rjómanum.
Hér má setja vel af karamellusósu yfir rjómann og skreyta síðan með niðurskornu súkkulaðieggjunum og nokkrum heilum.
Notið restina af súkkulaðieggjunum til að fylla hrískökuhreiðrin.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa