fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Matur

Leynitrix fyrir fljóta hefun – Einfalt og gott brauð

Amare
Miðvikudaginn 6. mars 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég elska að baka og að fá mér eitthvað nýbakað, ferskt úr ofninum um helgar. Um helgina datt ég í rosalegt „brauð-stuð” og langaði rosalega í svona alvöru nýbakað brauð með stökkri skorpu, en hafði aftur á móti ekkert rosalega langan tíma til að láta það hefast og bíða. Ég fékk ábendingu um mjög fljótlegt brauð sem heppnaðist fullkomlega. Ég breytti uppskriftinni örlítið frá upprunalegu og deili henni hérna með ykkur. En brauðið er bakað í steypujárnspotti.

2 pakkar þurrger
1 matskeið sykur
1 og 1/2 bolli volgt vatn
3 bollar hveiti
1 tsk salt

Settu ger, sykur og vatn í hrærivélaskál og láttu standa í ca. 5 mínútur.

Forhitaðu ofninn í 220°C og settu steypujárnspottinn inn á meðan ofninn er að hitna.

Bættu hveiti og salti út í gerið og hnoðaðu deigið í ca. 7 mín. Deigið er frekar blautt en á ekki að klístrast, ef það klístrast þarf meira hveiti.

Þá er það leynitrixið fyrir fljótlega hefun. Örbylgjuofninn. Settu smá olíu í skál sem þolir að fara í örbylgjuofninn. Taktu 2 viskastykki og bleyttu annað þeirra vel, það á að vera vel rakt en ekki svo það dropi úr því. Deigið er mótað í kúlu og sett í skálina, blauta viskastykkið sett yfir og svo er þurra viskastykkið sett þétt yfir allt.

Þetta er svo sett í örbylgju og hitað í 25 sekúndur. Svo lætur þú það standa í 5 mínútur í örbylgjunni. Það er svo aftur hitað í 25 sekúndur.

Ég hef svo fært það aftur í hrærivélaskálina og látið það hefast í ca. 30 mínútur. Á meðan er ofninn hitaður í 220°C og steypujárnspotturinn hitaður með.

Þegar deigið er búið að hefast er það mótað í kúlu, ég skar x ofan á það, og sett í stepujárnspottinn. Passa að lokið á pottinum er mjög heitt!

Brauðið er svo bakað í ca. 30 með loki, lokið er svo tekið af og brauðið bakað áfram í 10 mín eða þar til það er orðið fallega gyllt.

Því er svo leyft að standa í smá stund á borði og skorið þegar það er búið að kólna aðeins.

Okkur fjölskyldunni finnst þetta ótrúlega gott brauð og ég er mjög spennt að prófa að nota mismunandi krydd til að bragðbæta það.

Færslan er skrifuð af Fjólu og birtist upphaflega á Amare.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa