fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Matur

Svona heldurðu kolvetnasnauð jól: Ekkert mál að vera ketó yfir hátíðarnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 11. desember 2018 21:00

Alls kyns ketó kræsingar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmargir borða samkvæmt hinu svokallaða ketó-mataræði, eða lágkolvetna mataræði. Mataræðið felst í því að sneiða kolvetni að mestum hluta úr mataræðinu, en þeir sem eru ketó mega til dæmis ekki borða sykur, hveiti, ýmsa ávexti og grænmeti.

Því eru einhverjir sem kvíða jólunum og matseldinni sem þeim fylgir, en matarvefur DV kemur til hjálpar og bryddar upp á ketó-vænum hátíðaruppskriftum.

Humarsúpa.

Forréttur – Humarsúpa og hvítlauksbrauð

Humarsúpa – hráefni:

4 humarhalar í skel
2 msk. ólífuolía
½ bolli laukur, saxaður
1½ tsk. hvítlaukur, smátt saxaður
1 bolli þurrt hvítvín
2 tsk. Worcestershire-sósa
1 tsk. salt
1 tsk. þurrkað timjan
½ tsk. paprikukrydd
½ tsk. cayenne-pipar
¼ tsk. svartur pipar
1–2 msk. tómatpúrra
2 bollar humarsoð
2 bollar rjómi
4 msk. smjör

Aðferð:

Sjóðið humarhalana í 6 til 8 mínútur þar til skelin er rauð. Takið halana úr pottinum en haldið eftir vatninu til að nota sem humarsoð. Takið kjötið úr skelinni og setjið skelina aftur í vatnið og sjóðið í 10 mínútur til viðbótar. Hellið humarsoðinu í gegnum fínt gatasigti og haldið eftir 2 bollum. Skerið humar í munnbitastærð og setjið til hliðar. Takið til stóran pott og hitið olíu yfir meðalhita. Steikið lauk og hvítlauk í 5 mínútur. Blandið víninu varlega saman við, síðan Worcestershire-sósunni, salti, timjan, paprikukryddi, cayenne-pipar og svörtum pipar. Hrærið tómatpúrru og humarsoðinu saman við. Náið upp suðu og látið malla í 10 mínútur. Maukið súpuna með töfrasprota og bætið síðan rjóma og smjöri saman við. Smakkið til og saltið eftir þörfum. Setjið humarinn út í súpuna og látið malla í 5 til 10 mínútur til viðbótar.

Hvítlauksbrauð.

Hvítlauksbrauð

Hráefni:

1 bolli rifinn ostur
½ bolli möndlumjöl
2 msk. rjómaostur
1 msk. hvítlaukskrydd
1 tsk. lyftiduft
salt
1 stórt egg
1 msk. smjör, brætt
1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður
1 msk. fersk steinselja, söxuð
1 msk. rifinn parmesanostur

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C og setjið smjörpappír á stóra ofnplötu. Setjið rifinn ost, möndlumjöl, rjómaost, hvítlaukskrydd, lyftiduft og salt í skál sem þolir örbylgjuofn. Hitið í örbylgjuofni í um mínútu, eða þar til osturinn er bráðnaður. Hrærið eggi saman við. Hellið deiginu á ofnplötuna og mótið brauðhleif úr því. Blandið smjöri, hvítlauk, steinselju og parmesan saman í lítilli skál og penslið deigið með blöndunni. Bakið í 15 til 17 mínútur, eða þar til brauðið er fallega gullinbrúnt.

Aðalréttur – Lamb með fáfnisgrasi, blómkálsgratín, aspas, sósa og hvítlaukssveppir

Lambið.

Lamb með fáfnisgrasi

Hráefni:

600 g lambakjöt
salt og pipar
3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1 msk. þurrkað fáfnisgras
4 msk. ólífuolía
1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
2 dósir cannellini-baunir, safi tekinn af

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Kryddið lambið með 1 teskeið af salti og ½ teskeið af pipar. Setjið það í ofnpott eða ofnskúffu. Blandið hvítlauk, fáfnisgrasi og 1 matskeið af olíu saman í lítilli skál. Nuddið þessari blöndu í lambið. Steikið lambið í 25 til 30 mínútur fyrir „medium rare“, færið það á skurðarbretti og leyfið því að hvíla í 5 mínútur áður en það er skorið. Haldið eftir soðinu fyrir sósuna (sjá sósuuppskrift). Hitið restina af olíunni, 3 matskeiðar, í stórri pönnu yfir meðalhita. Steikið lauk í um 4 mínútur eða þar til hann er mjúkur. Bætið baunum, ½ teskeið af salti og ¼ teskeið af pipar saman við. Eldið í 3 til 4 mínútur og berið fram með lambinu.

Sósan.

Ketó-sósa

Hráefni:

4 msk. smjör
1 bolli soðið af lambakjötinu
2 bollar nautasoð
2 tsk. Worcestershire-sósa
1 tsk. hvítlaukskrydd
salt og pipar
2 msk. vatn
¼ bolli maíssterkja

Aðferð:

Takið til meðalstóra pönnu og bræðið smjörið yfir meðalhita. Bætið soði af lambakjöti og nautasoðinu varlega saman við og þeytið þar til blandan er silkimjúk. Náið upp suðu og bætið síðan Worcestershire-sósunni og hvítlaukskryddinu saman við. Kryddið með salti og pipar. Blandið vatni og maíssterkju saman í lítilli skál og blandið því síðan við sósuna. Hrærið stanslaust í 3 mínútur, eða þar til sósan hefur þykknað. Ef hún er of þykk er um að gera að bæta meira soði við.

Sveppirnir.

Hvítlaukssveppir

Hráefni:

4 msk. smjör, brætt
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
2 tsk. ferskt timjan, saxað
1 tsk. balsamic-edik
salt og pipar
680 g sveppir, hreinsaðir

Aðferð:

Hitið ofninn í 190°C. Blandið smjöri, hvítlauk, timjan og ediki saman í meðalstórri skál. Raðið sveppunum á stóra ofnplötu og hellið smjörblöndunni yfir þá. Saltið síðan og piprið. Steikið í 15 til 18 mínútur.

Aspasinn.

Ofnbakaður aspas

Hráefni:

900 g aspas, stilkarnir snyrtir
3 msk. ólífuolía
salt og pipar

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Blandið öllum hráefnum vel saman og ekki spara salt og pipar. Skellið á ofnplötu og bakið í 25 mínútur.

Gratínið.

Blómkálsgratín

Hráefni:

1½ blómkálshaus, skorinn í bita
12 msk. smjör
½ bolli rjómi
3 hvítlauksgeirar
2 bollar rifinn ostur
1 bolli rifinn parmesanostur
1 msk. ferskt timjan
salt og pipar

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Sjóðið blómkálið í saltvatni í 8 mínútur. Smyrjið stórt eldfast mót með smjöri. Bætið helmingnum af blómkálinu í botninn og hellið helmingnum af rjómanum yfir það. Dreifið helmingnum af smjöri, hvítlauk, osti, parmesan og timjan yfir það og endurtakið síðan. Saltið og piprið. Bakið þar til osturinn hefur bráðnað og tekið lit, eða í um 30 mínútur. Leyfið að kólna í 5 mínútur og berið svo fram.

Súkkulaðikaka.

Eftirréttur – Ketó-súkkulaðikaka

Kaka – Hráefni:

1½ bolli möndlumjöl
2/3 bollar kakó
¾ bollar kókoshveiti
¼ bolli flax
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
115 g smjör, mjúkt
¾ bolli ketó-sykur (eins og Swerve)
4 stór egg
1 tsk. vanilludropar
1 bolli möndlumjólk
1/3 bolli sterkt kaffi

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C og takið til tvö hringlaga form, sirka 20 sentímetra stór. Smyrjið þau með smjöri. Blandið möndlumjöli, kakó, kókoshveiti, flax, lyftidufti, matarsóda og salti vel saman í skál. Þeytið smjör og Swerve vel saman í annarri skál og bætið eggjunum saman við einu í einu, og því næst vanilludropunum. Blandið þurrefnunum saman við og hrærið síðan mjólk og kaffi saman við. Skiptið deiginu á milli formanna tveggja og bakið í um 28 mínútur. Kælið alveg.

Krem – Hráefni:

450 g rjómaostur, mjúkur
115 g smjör, mjúkt
¾ bolli ketó-sykur (eins og Swerve)
½ bolli kakó
½ bolli kókoshveiti
¼ tsk. instant-kaffi
¾ bolli rjómi
salt

Aðferð:

Blandið rjómaosti og smjöri vel saman þar til blandan er silkimjúk. Bætið Swerve, kakói, kókoshveiti og instant-kaffi saman við og þeytið þar til blandan er kekkjalaus. Bætið rjóma og salti saman við og þeytið vel. Setjið einn kökubotn á disk, smyrjið hann með kremi og setjið hinn botninn ofan á. Notið restina af kreminu ofan á kökuna. Geymið í ísskáp þar til kakan er borin fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa