Stjörnukokkurinn Jamie Oliver segist ekki eiga meiri peninga til að setja inn í veitingastaðina sína eftir að keðjan hans, Jamie’s Italian rambaði á barmi gjaldþrots í fyrra. Jamie segist ekki geta sett meira fé inn í reksturinn, en hann hefur sett 12,7 milljónir punda í veitingastaðina af sínu eigin fé, eða tæplega tvo milljarða króna.
„Ég á ekki meiri peninga. Það kemur sú stund þar sem ég get ekki sett aðrar hliðar rekstursins í hættu sem og fólkið sem vinnur þar,“ segir kokkurinn í samtali við Mail on Sunday. Hann bætir þó við að hann sé ekki blankur – hann bara eigi ekki meira fé úr eigin vasa til að setja í rekstur veitingastaðakeðjunnar.
Fyrsti Jamie’s Italian-staðurinn opnaði árið 2008, en nýlega var sagt frá því að heildarskuldir keðjunnar væru 71,5 milljónir punda. Fyrr á þessu ári var sagt frá því að tólf stöðum í keðjunni yrði lokað og sex hundruð manns myndu missa vinnuna. Jamie’s Italian opnaði dyr sínar á Íslandi í júlí í fyrra. Samkvæmt frétt Markaðarins fyrr á árinu tapaði staðurinn 85,5 milljónum króna það ár. Þá var eigið fé neikvætt um 85 milljónir og skuldir námu 258 milljónum króna við árslok. Veltan var 346 milljónir króna. Í sömu frétt var sagt frá því að Jón Haukur Baldvinsson ynni að því að eignast veitingastaðinn að fullu.
En aftur að Jamie Oliver. Hann er metinn á 240 milljónir punda, þökk sé matreiðslubókum sem hann hefur gefið út og veitingastöðum. Þó útlitið sé svart í veitingahúsabransanum, leikur lífið við Jamie. Hann og eiginkona hans, Jools, gengu í það heilaga árið 2000, áður en kokkurinn varð heimsfrægur, og ætla að fagna tveimur áratugum af hjónabandi árið 2020 með því að endurnýja heitin. Ku sá viðburður vera í undirbúningi nú þegar.