
Héraðssaksóknari hefur ákært mann á Norðurlandi fyrir kynferðisbrot, nánar tiltekið kynferðislega áreitni.
Meint brot var framið laugardagskvöldið 1. júlí árið 2023, í kjallara ótilgreinds húsnæðis, en ákærði strauk niður eftir baki brotaþola, dró hana að sér og kyssti hana á munn og kinn og greip í rass hennar utanklæða og skömmu síðar greip hann um klof hennar utanklæða og lyfti henni upp og sló á rass hennar utanklæða eftir að hann setti hana aftur niður.
Konan krefst einnar milljóna króna í miskabætur.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Norðurlands eystra þann 20. maí síðastliðinn.