

Sveitarstjórnarkosningar eru handan við hornið og segir Benedikt í pistli á Facebook-síðu sinni að á undanförnum dögum hafi margir komið að máli við hann og rætt um kosningarnar.
„Flesta þekki ég auðvitað, en einstaka svífa á mig á förnum vegi og vilja ræða málið. Allir eru sammála um að nú sé kominn tími til þess að gefa Samfylkingunni frí. Jafnvel fólk sem stendur henni nærri og ætlar hugsanlega að kjósa hana af gömlum vana, sjálfu sér þvert um geð,“ segir Benedikt.
Hann bætir við að einn frasi komi fyrir oftar en ekki í samtölum við fólk: „Ég ætla að kjósa strategískt, en hvernig get ég kosið þannig að Samfylkingin komi ekki upp úr kössunum, hvernig sem kosningarnar fara?“
Benedikt segist hafa velt þessu fyrir sér með hliðsjón af stöðunni í skoðanakönnunum.
„Staðan núna er þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur 7-8, Samfylking 4-5, Viðreisn þrjá, Framsókn einn og hinir skiptast á ýmiss konar lýðskrumsflokka.“
Benedikt kveðst sjálfur hafa mikla trú á því að Björg Magnúsdóttir, oddviti flokksins í Reykjavík, sé efni í góðan borgarstjóra þó ekki sé gefið að hún nái því – jafnvel þó allir séu sammála um að Viðreisn verði í lykilhlutverki eftir kosningarnar.
„Hættan er sú að Miðflokkurinn gæti með góðri kosningu fengið oddaaðstöðu sem er ekki skemmtileg tilhugsun. Niðurstaða mín er sú að eina leiðin til þess að tryggja að Samfylkingin fari frá sé að kjósa Viðreisn þannig að flokkurinn fái fjóra borgarfulltrúa. Ég veit að fulltrúar flokksins eru harðákveðnir í því að snúa rekstrinum við þannig að borgin þurfi ekki að berjast í bökkum (eða bönkum),“ segir hann og kveðst sannfærður um að leiðin til að snúa rekstri borgarinnar við sé að tryggja flokknum góða kosningu.
Margir leggja orð í belg við færslu Benedikts og sitt sýnist hverjum. Einn bendir á að Viðreisn hafi nú verið í borgarstjórn með Samfylkingu í mörg þar sem flokkurinn veitti forystu í veigamiklum málaflokkum. Annar spyr hvort hann sé viss um að Viðreisn verði ekki enn og aftur „varadekk“ fyrir þessa „hræðilegu“ borgarstjórn.
„Margir tala um þetta og til þess að tryggja að það gerist ekki þarf að passa að Miðflokkurinn verði ekki í oddaaðstöðu og Viðreisn fái helst fjóra borgarfulltrúa,“ svarar Benedikt.