

Margréti Tryggvadóttur, rithöfundi, var verulega brugðið þegar hún átti leið um Hálsatorgið í Hamraborginni en þar er búið að mála yfir listaverkið Sólarslóð. Margrét situr í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs fyrir hönd Samfylkingarinnar og segir að málið hafi ekki ratað inn á borð nefndarinnar. Hún veltir fyrir sér hver veitti leyfi fyrir þessari breytingu og hver átti frumkvæðið að því að málað var yfir verkið.
„Mér var mjög brugðið að sjá að búið væri að mála yfir verk Theresu Himmer, Sólarslóð, á Hálsatorgi.
Síðustu ár hef ég setið í Lista- og menningarráði Kópavogs sem heitir reyndar núna Menningar- og mannlífsnefnd. Þar höfum við verið áfram um að fjölga útilistaverkum í bænum en ekki fækka þeim! Ef ég man rétt átti verkið aldrei að vera varanlegt en það hefur þó staðið í næstum sjö ár og var alls ekki illa farið – og það sem meira er hafði að mestu verið látið vera af öðrum veggjalistamönnum. Það hefur mér þótt aðdáunarvert. Ég á leið þarna um næstum daglega og hef því upplifað verkið við allar aðstæður og aldrei man ég eftir veggjakroti á því.
Þá finnst mér ömurlegt að sjá nú skilaboð á veggnum sem ekki geta talist annað en pólitísk, enda umdeilanlegt hvort yfirstandandi niðurrif á Félagsheimilinu sé uppbyggilegt eða ekki. Og það nokkrum dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar.“
Margrét getur ekki litið öðruvísi á þessa breytingu en svo að listaverk sem Kópavogur hefur varðveitt undanfarin ár hafi þurft að víkja fyrir kosningaauglýsingu meirihlutans. Hún hefur því óskað eftir því að menningar- og mannlífsnefnd verði kölluð saman við fyrsta tækifæri og þar verði því svarað hver átti frumkvæðið að því að málað var yfir verkið, hver veitti leyfið fyrir því og hvers vegna nefndin var ekki upplýst um „fyrirhugað skemmdarverk“. Eins vill Margrét vita hvort samráð hafi átt sér stað við Gerðarsafn, sem hefur umsjón með útilistaverkum bæjarins, og hvort bærinn hafi haft samband við listakonuna Theresu Himmer, sem skapaði málaði Sólarslóðina. Loks spyr Margrét hvort til standi að mála yfir fleiri útilistaverk í Kópavogi.
Umræða hefur skapast í athugasemdum við færsluna en þar er breytingin sögð smekklaus og bæjarstjórn sökuð um dómgreindarleysi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata, segir þetta mjög óviðeigandi svona í aðdraganda kosninganna.
„Það tók mig smá stund að átta mig á að þetta væri raunverulega ekki auglýsing fyrir Framsóknarflokkinn… Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“
Vegglistaverkið Sólarslóð var afhjúpað sumarið 2019 en það sýndi hreyfingu sólar yfir 12 mánaða tímabil og sótti innblástur meðal annars til verka Gerðar Helgadóttur. Hver brotalína á verkinu áætlaði hæstu stöðu sólar á 21. degi hvers mánaðar ársins. Línurnar voru málaðar með hvítri vegamálningu sem var blönduð örsmáum glerperlum sem fönguðu geisla sólarinnar þegar hennar naut við. Verkið var eftir dönsku myndlistarkonuna Theresu Himmel og er enn skráð sem safneign Gerðarsafns á vefsíðu safnsins.