fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 13:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttastofa RÚV greindi frá því nú í hádeginu að starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefði gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra, á innkaupakorti sem hún hefur til umráða. Borgarstjóri hefði ítrekað verið minntur á reglur um notkun kortsins. Heiða hefur notað kortið fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti snemma á síðasta ári.

Athugasemdirnar varða meðal annars skil á kvittunum, óskir um nánari skýringar á færslum og svo leiðbeiningar um rétta notkun innkaupakortsins. Að sögn RÚV hefur starfsfólk eins gert munnlegar athugasemdir um notkunina og leiðbeint Heiðu um notkun kortsins og þær reglur sem um hana gilda. Bókhaldsskrifstofa fjármála- og áhættustýringarsviðs hefur einnig gert athugasemdir við óskýrar upplýsingar á kvittunum eða skort á þeim.

Kortið hefur meðal annars verið notað í áfengiskaup en Heiða Björg lýsti því í gær að hún hafi haft heimild fyrir kaupunum. Hæstu greiðslurnar vegna notkunar kortsins hafi komið til vegna flugferðar sem Heiða hafi þurft að panta með skömmum fyrirvara þegar hún var í opinberri heimsókn í Japan. Flugfarið kostaði 300 þúsund krónur.

Heiða hefur nú birt yfirlýsingu vegna fréttaflutnings RÚV þar sem hún segir að frá fyrsta degi hafi hún leitast við að fylgja leiðbeiningum um notkun kortsins sem og treyst því eftirlits- og verklagi sem borgin hafi komið sér upp. Hafi hún í fjórgang greitt útlagðan kostnað úr eigin vasa vegna þess að hún veitti ekki fullnægjandi upplýsingar eða gögn um kaupin. Kaup á veitingum hafi átt sér stað í tengslum við fundi, opinberar móttökur eða vegna gesta á vegum borgarinnar. Allt sé þetta í samræmi við venju. Heiða segist taka því alvarlega þegar spurningar vakna um ráðstöfun opinbers fjár en á sama tíma telur hún að umræðan þurfi að byggja á heildarmyndinni. Heildarmyndin hér sýni að virk innri endurskoðun og eftirlit sé til staðar í borginni og að allar færslur á kortinu hafi farið í gegnum gagnsætt ferli og leiðréttingar gerðar þegar tilefni gafst til. Birti Heiða svo mynd af öllum útgjöldum sínum á innkaupakortinu:

Yfirlýsing Heiðu Bjargar:

„Vegna umfjöllunar um notkun mína á innkaupakorti Reykjavíkurborgar í tengslum við störf mín sem borgarstjóri vil ég skýra þá notkun og þær verklagsreglur sem gilt hafa um kortið frá því ég tók við embætti.

Frá fyrsta degi hef ég leitast við að fylgja þeim leiðbeiningum sem mér voru veittar um notkun kortsins og treyst því eftirlits- og verklagi sem Reykjavíkurborg hefur komið sér upp. Mér var í upphafi leiðbeint um að mikilvægt væri að öllum kvittunum og fylgigögnum væri skilað inn, að bókhald og starfsfólk færi yfir allar færslur og að gerðar yrðu athugasemdir eða óskað eftir frekari upplýsingum ef eitthvað þætti óskýrt eða ekki í samræmi við reglur. Þá var einnig skýrt að ef upplýsingar eða gögn reyndust ekki fullnægjandi bæri mér sjálfri að greiða viðkomandi kostnað. Fjórum sinnum hef ég gert það.

Ég hef unnið samkvæmt þessu verklagi og átt í reglulegum samskiptum við starfsfólk borgarinnar um skýringar, kvittanir og frágang einstakra færslna, líkt og tíðkast í slíku eftirlitsferli. Í nokkrum tilvikum var óskað frekari upplýsingar eða ítarlegri kvittana og í þeim tilvikum þar sem gögn reyndust ekki nægilega fullnægjandi hef ég endurgreitt kostnað sjálf.

Varðandi kaup veitinga þá voru þau eingöngu vegna funda, opinberra móttaka eða gesta á vegum borgarinnar, í samræmi við það sem hefur tíðkast, og samkvæmt því ferli sem mér var kynnt, þar sem sérstök skráning og staðfesting fylgir slíkum útgjöldum. Borgin býður iðulega uppá kaffi og aðrar veitingar, þar á meðal léttvín, á móttökum og viðburðum.

Stærsti einstaki útgjaldaliðurinn á tímabilinu, um 300 þúsund krónur, var vegna bókunar á flugi frá Japan í tengslum við opinbera heimsókn með forseta Íslands, þegar bregðast þurfti við röskun á flugi með mjög skömmum fyrirvara til að tryggja heimkomu vegna funda og starfa hér heima.

Ég tek það alvarlega þegar spurningar vakna um ráðstöfun opinbers fjár. Um leið tel ég mikilvægt að umræðan byggi á heildarmyndinni: að virk innri endurskoðun og eftirlit hafi verið til staðar, að allar færslur hafi farið í gegnum það gagnsæ ferli og að leiðréttingar hafi verið gerðar þegar tilefni var til. Á myndinni má sjá öll útgjöld mín á innkaupakortinu í minni tíð sem borgarstjóri.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum
Efnaleki í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“
Fréttir
Í gær

Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs 2026

Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs 2026